Föstudagur enn einu sinni!
Það er svo sem ekki margt merkilegt búið að gerast þessa vikuna. Um síðustu helgi fórum við í fondúmatarboð til Ara og Sybil ásamt nokkrum öðrum og það var alveg æðislega kósí. Sybil er svissnesk og pottþétt eftir því og mamma hennar rak einu sinni fondúveitingastað þannig að það var farið eftir stífum reglum við fondúátið: Það var notaður svissneskur Gruyere ostur og svo var skvett smá kirsuberjasnaps út í og drukkið hvítvín frá Alsace með, rosa gott og svo var náttúrulega súkkulaðifondú í eftirrétt. Þetta var nú bara rólegt of við Pétur fórum síðast en samt ekki svo seint.
Við Pétur erum búin að kaupa okkur kort í YMCA líkamsrækt og höfum farið aðeins síðustu vikur, við rétt náum að fara tvisvar sinnum, ég kannski þrisvar ef ég er dugleg en nú er ég hætt að vinna til klukkan 6 svo að ég ætla að reyna að taka mig aðeins á, kannski bara eftir jól samt... Pétur hefur mest lítið komið nálægt svona stöðum fram að þessu en ég held bara að það komi honum á óvart hvað þetta er lítið leiðinlegt... svo er náttúrulega fullt af flottum stelpum að skoða og svoleiðis...
Í gær horfðum við á mynd frá Angóla sem var verið að sýna í Concordia sem er einn háskólinn hérna, hún var fín og fjallaði um eftirköst stríðsins. Á eftir voru umræður og ég fann að Pétur iðaði í skinninu að tjá sig en þorði ekki þrátt fyrir að ég hvetti hann til þess. Hann hafði örugglega meira til málanna að leggja en flestir sem voru að tjá sig þarna.
Við höfum ekki planað neitt sérstakt um helgina nema að við erum búin að bjóða nokkrum mannfræðistrákum í matarboð á sunnudaginn í tilefni af því að einn þeirra, hann Stephen, er að fara heim til sín til Kenya í tvo mánuði yfir jólin. Svo þarf ég að reyna að finna mér eitthvað til að vera í á jólaballinu í vinnunni sem er um næstu helgi, þemað er 50´s og 60´s en ég held að fæstir ætli að klæða sig í samræmi við það. Ég tími samt varla að kaupa mér neitt svo að mér datt í hug að reyna að finna einhvern flottan second hand kjól frá því tímabili og kannski lakkrísbindi handa Pétri.
Læt þetta duga í bili, góða helgi!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home