föstudagur, nóvember 18, 2005

Friday I'm in Love...

Þetta er alveg örugglega besti tími vikunnar, föstudagur klukkan 6 og ég sit í sófanum með bjór í annarri og snakk í hinni og Pétur var að setja Friday I´m in Love með Cure á fóninn fyrir mig, sem var einmitt uppáhaldslagið mitt þegar ég var í unglingavinnunni eftir 9.bekk...

Gallabuxnaleitin hefur enn engan árangur borið en ég held ótrauð áfram leitinni... Í vikunni fór ég í uppáhaldsbúðina mína, Urban Outfitters, öðru nafni The Evil Empire en þeir veittu einmitt fjármagni í kosningasjóði Bush fyrir síðustu kosningar... Ég vil frekar meina að þetta sé The Evil Empire af því að það eru svo viðbjóðslega flott föt þarna en allt of dýr á Montréalískan mælikvarða, skítt með þó að maður styrki Bush-kallinn aðeins í leiðinni... En nóg um yfirborðskennda hluti eins og föt í bili...

... og yfir í dýpri pælingar um útstáelsi og skemmtilegheit... Í gær kíktum við á bar sem heitir St. Elizabeth með Guðrúnu og Mathieu sem var mjög fínt en ég held að við höfum reykt óbeint um tvo pakka á mann og Pétur er enn með öskubakkabragð í munninum, vibbi! Í kvöld var mér boðið með hóp af mannfræðistelpum sem voru á leið á hommabar því að þær eru orðnar þreyttar á ágengni montréalískra karlmanna. Ég er of þreytt eftir gærkvöldið til að fara en vona að þær bjóði mér einhvern tíma seinna. Í staðinn ætlum við P að hafa það kósí í kvöld. Á morgun erum við svo að fara í fondúmatarboð til Ari og Sybil ásamt fullt af fólki og það verður örugglega geggjað gaman!

Nú er hún Johanne yfirkona mín mætt aftur til vinnu en hún hefur verið frá undanfarnar vikur vegna veikinda pabba síns. Það er mikill léttir fyrir mig því að hún stressar sig alveg fyrir allt tímið og meira til, það hefur örugglega ekkert jafn róandi áhrif á mig og að heyra tautað í næsta bás: "shit, shit, shit, shit..." því að þá veit ég að einhver annar hefur áhyggjur af þessu öllu saman... ég er ekki að grínast! Pétur er aftur á móti svo afslappaður að ég þarf að sjá um stressið á heimilinu, eða þannig sko.

Góða helgi! Megi ykkar vera jafngóð og okkar!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com