Ætli það sé hægt að deyja úr tilhlökkun? Ég veit allavega af fyrr reynslu að ég get orðið veik áður en ég fer heim um jólin... Hef upplifað ófáar flugferðirnar með hita og kvef. Pétur segir að ég höndli ekki spenninginn. Hann er alltaf sallarólegur og segir að jólin komi ekki fyrr en á aðfangadag, ég meina það, hvað með aðventuna? Mér finnst einmitt að ég sé svolítið heit í framan núna en er að reyna að leiða það hjá mér, ætla sko ekki að fá jólaveikina þetta árið! Á meira að segja eftir að kaupa allar jólagjafir og er að fara í það eftir vinnu í dag. Jólakveðja frá Montréal

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home