mánudagur, júní 21, 2004

Joburg

Á föstudaginn komum við heim úr síðasta ferðalaginu okkar hér í Afríku því að við verðum bara hér í Lilongwe þessar tvær vikur sem eftir eru enda nóg komið af flakki í bili. Við höfðum það fínt í Jóhannesarborg, versluðum, fórum í bíó á Harry Potter 3, borðuðum æðislegan og fáránlega ódýran mat, drukkum vín og horfðum á Euro 2004. Það er hreint ótrúlegt hvað maður saknar þessara veraldlegu hluta þegar þeir eru ekki innan seilingar.

Toppurinn á ferðinni var samt ferð í Soweto sem er "township" svartra þar sem uppreisnin gegn aðskilnaðarstefnunni hófst. Þar fóru stúdentar í mótmælagöngu 16. júní árið 1976 sem endaði með að lögreglan myrti marga þeirra en við vorum einmitt í þessari ferð 16. júní og því margt um að vera í Soweto sem var eins og risastórt fangelsi síðustu ár apartheid með ljóskösturum og þyrlum fljúgandi yfir. Samt kom margt okkur á óvart þar, sérstaklega að þarna eru fín hús í ákveðnum hluta bæjarins þó að flestir íbúarnir séu atvinnulausir og fátækir. Flestir eru líka með rennandi vatn og rafmagn sem er meira en má segja um flest malavísk þorp. Annað sem kom okkur á óvart er að Soweto er mun öruggara hverfi en miðborg Jóhannesarborgar sem er ein hættulegasta borg í heimi.

Einn daginn fórum við svo í ferð í ljónagarð rétt fyrir utan borgina og þar fékk ég að klappa ljónaungum sem sváfu vært á meðan og fannst það bara notó. Ef að þeir hefðu verið svolítið minni hefði ég líka fengið að halda á þeim en ég var ekki svo heppin, samt var þetta draumur sem rættist hjá mér eins og þeir sem þekkja mig ættu að vita...

Mér finnst alveg aðdáunarvert hvað Suður-Afríka ætlar að ná sér eftir hörmulega fortíð þó að enn sé margt sem þarf að bæta. Enn leynast einhverjir rasistar á milli á báða bóga og t.d. eru víst enn dómarar sem voru skipaðir á apartheid-tímanum. Svo er glæpatíðnin alveg rosaleg en hún hefur samt lækkað á síðustu árum. Flestir eru samt mjög vinsamlegir og þjóðin virðist vera að sameinast og mikil þjóðerniskennd er að verða til. Nú vilja víst fæstir kannast við að hafa stutt aðskilnaðarstefnuna á sínum tíma.

Suður-Afríka er líka miklu þróaðra samfélag en t.d. Malaví og við tókum eftir því að það var verið að berjast gegn AIDS og hvetja fólk til að nota smokk. Aftur á móti er það algert tabú hér í Malaví og talað um að fólk sé með "chornical disease" af því að alnæmi smitast með kynmökum og það má aldrei gefa í skyn að fólk hafi gert svo ógeðslega hluti! Við höfum meira að segja heyrt að það megi ekki einu sinni ræða um að kona sé ófrísk fyrr en barnið er allt í einu mætt á svæðið... Þess vegna er ekki auðvelt að auglýsa smokkinn hérna, því miður.

Jæja, svo mætum við bara á svæðið eftir tæpar tvær vikur, föstudaginn 2. júlí, daginn eftir að Pési litli verður 25 ára, ótrúlegt!

Dóra

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com