Jæjjjjaaaaa...
Nú eru kannski einhverjir farnir að undrast hvað hefur orðið um okkur síðustu vikurnar. Við höfum það bara gott en netið er eitthvað lasið hérna hjá okkur. Nú er ég á skrifstofunni hjá Margréti til þess að láta vita af okkur.
Margt hefur gerst síðan síðast. Nú eru Dóri og Agga í heimsókn hjá okkur og við skemmtum okkur konunglega saman. Við erum búin að fara í safarí til Zambíu og gistum á lúxus-lodge í þrjár nætur. Dagurinn hófst á mjög svo ókristilegum tíma kl. 5:15 og svo var lagt af stað í morgunsafarí kl. 6-10:30. Svo var síesta um miðjan dag, legið í sólbaði og drukkinn bjór. Kl. 4-8:30 var svo farið í kvöldsafarí, borðað kl. 9 og eftir það voru allir svo sybbnir að það var bara farið beint að lúlla. Við vorum mjög heppin og sáum alveg fullt af dýrum, eiginlega allt nema hlébarða. Fyrsta sun-downerinn vorum við með fílahjörð í kringum okkur í ca. 6 m fjarlægð, svo sáum við sebrahesta, gíraffa, antilópur, apa, flóðhesta, vörtusvín og margt fleira. Siðasta daginn vorum við m.a.s. svo heppin að sjá ljón um hábjartan dag rétt fyrir framan okkur mér til mikillar ánægju. Mig langaði mest til að hoppa út úr bílnum og knúsa þau. Pétur var aftur á móti hrifnastur af flóðhestunum og langaði mikið til að knúsa þá eða rassskella þá á feitan bossann... Ég er víst ekki ein um að vera hrifin af kisum því að ein sem að vinnur á lodginum sagði okkkur við matarborðið að hana langar til að knúsa alla ljóns og hlébarðaunga sem hún sér og á erfitt með að halda aftur af sér. Þá sagði Dóri: Pétur, viltu ekki segja þeim frá þinni fantasíu? og við sprungum öll úr hlátri, alveg krónískt hláturskast, allir horfðu á okkur í forundran og það endaði með því að Pétur varð að segja frá flóðhestadraumum sínum.
Ég var að fá þær fréttir að ég komst ekki heldur inn í hinn skólann en ég var á einhverjum biðlista og fékk þess vegna svarið svona seint. Ég var reyndar alveg búin að afskrifa hann. Ég fékk smá plástur á egóið hvað varðar hinn skólann því að mamma sagði mér að aðeins 30 af 500 sem sóttu um komust inn.
Jæja, það er víst verið að reka á eftir mér, reyni að skrifa meira við fyrsta tækifæri.
Dóra slóra

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home