Letilíf í Lilongwe
Nú erum við búin að vera í viku hérna í Lilongwe og hafa það gott. Dagarnir ganga allir sinn vanagang. Hér byrjar dagurinn alltaf á sömu setningunum: “Good morning, how are you?” “I am fine thank you, how are you?” “I am fine thank you!” Þetta hljómar eiginlega eins og rispuð plata og mér finnst eiginlega hálf súrrealískt að endurtaka þetta svona, hef stundum verið að spá í hvort að maður ætti að reyna að breyta eitthvað út af forminu en ef maður gerir það þá fer bara allt í rugling og fólk veit ekki hvernig það á að svara þannig að það er líklega best að halda sig bara við hefðina... Á morgnana reynum við Pétur svo að myndast við að skrifa eitthvað af viti og ég hef aðeins verið að gera power-point fyrir Margréti en við erum nú frekar löt verð ég að segja. Eftir hádegi förum við svo í íþróttaklúbb hérna í golf eða tennis, í sólbað og sund á einu hótelinu hérna, í göngutúr niður í bæ, að versla í matinn eða bara hvað sem okkur dettur í hug. Í síðustu viku fór ég ásamt ungri íslenskri konu sem er læknir og fer að vinna hérna í sumar og garðyrkjumanninum honum Frank á markaðinn niðri í bæ. Ég hafði aldrei komið á hann áður og eins gott að ég fékk Frank til að koma með okkur því að annars hefði ég aldrei fundið grænmetismarkaðinn sem er falinn bak við eitthvað þröngt sund. Þetta var algert ævintýri, grænmetið leit mjög vel út og var að sjálfsögðu mjög ódýrt en þarna er ekki prúttað sem betur fer! Svo var líka fiskimarkaður þarna þar sem verið var að selja örsmáa fiska úr vatninu sem eru flestir á stærð við sardínur í dós. Það er líka áberandi að öllu er svo vel raðað upp, sölumennirnir hafa m.a.s. dundað sér við að raða fiskunum í svona spírala. Á mánudaginn förum við svo aftur til Monkey Bay og verðum allavega í viku. Við erum líka að hugsa um að skella okkur til Livingstonia Beach um helgina og kannski reyna að snorkla smá, gaman, gaman!
Slæmar fréttir, ég komst allavega ekki í skólann í Montréal og líklega ekki í hinn heldur. Það gætu verið margar ástæður fyrir þessu en ég held að það sé aðallega vegna þess að ég kláraði bara tvö ár í stjórnmálafræðinni en tvö ár í frönsku, ég hefði líklega þurft að hafa þrjú í stjórnmálafræðinni. Annars verður það bara að koma í ljós þegar ég fæ bréf frá skólunum. Þá get ég reynt að senda þeim bréf og sagt að ég sé hvort sem er að fara út og hver veit nema þeir gefi mér sjens. Ég er auðvitað hundfúl og svekkt en þetta gefur mér kannski tækifæri til þess að endurskoða framtíðarplön mín því að ég hef alltaf verið í vafa um hvort að ég sé á réttri hillu. Ég hugsa að við förum út hvort sem að ég kemst inn eða ekki, ég reyni bara að finna mér eitthvað annað að gera, t.d. halda við frönskunni, fara í einhverja kúrsa og jafnvel leita mér að vinnu.
Að lokum viljum við endilega hvetja ykkur sem lesið þessa síðu (ef það eru þá einhverjir) til að koma með komment, það er ekkert gaman að skrifa ef maður fær ekkert feedback! Þá er bara eins og maður sé Palli einn í heiminum og enginn sé þarna úti að lesa...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home