Blogg 1 april 2004
Það er greinilegt hvert okkar er duglegri í blogginu, ég eða Dóra, greinilega ekki ég. Ég er búin að vera lasinn frá því að við komum frá Monkey Bay, með einhverja magakveisu sem er víst mjög algeng meðal ferðamanna hérna í Malawí. Núna er ég hinsvegar orðinn hressari (ekki seinna vænna þar sem við leggjum af stað til Suður-Afríku á laugardaginn) og er loksins byrjaður að blogga og búinn að setja fullt af nýjum myndum á myndasíðuna okkar.
Eins og Dóra hefur sagt ykkur þá var alveg yndislegt í Monkey Bay og Chirombo þorpi og þar eignuðumst við nokkra vini sem við hlökkum til að hitta næst þegar við komum þangað. Satt að segja þá er svo fallegt þarna niður við vatn að ég gæti trúað að Malawí vatn væri ein best geymda náttúruperla jarðarinnar. Ég reyndi að veiða í vatninu tvisvar en án árangurs, hafði samt voða lítinn tíma til þess, en næst þá ætla ég að stúdera þetta betur og gefa mér meiri tíma í veiðiskapinn.
Dóra er nánast búin að segja það flesta sem okkur bar á góma hina frábæru viku í Monkey Bay þannig að ég er ekki alveg viss um hvað ég eigi að tala um hérna. Eins og Dóra hefur nefnt þá rugla Malawar oft saman L og R þegar þeir eru að tala en það gera þeir líka oft þegar þeir skrifa. Dæmi um þetta er til dæmis stórt skilti sem bandaríkjamaður benti okkur á þar sem stóð “The preasure lodge” (Þýstings heimilið) en átti mjög sennilega að vera “The pleasure lodge” (Unaðs heimilið). Þetta getur verið mjög fyndið en þetta venst mjög fljótt.
Það er líka mjög algengt að fólk trúi á galdra hérna, til að mynda heldur hann Frank (garðyrkjumaðurinn okkar) að pabbi hans hafi látist úr göldrum. Og ræðismaður Íslands í Malawi sagði mér að maður ætti aldrei að fara út á te akrana án þess að hafa fengið sér einhverja vörn frá töframanni gegn snákabitum annars er alveg öruggt að maður verði bitinn af snáki. Galdrar og bænir eru líka talin hafa mikil áhrif á gengi íþróttaliða og hef ég séð það að þjálfarar fótboltaliða hér í Malawí biðja áhangendur um styrk í formi bæna.
Á sama tíma og hefðbundin galdratrú er mjög ríkjandi eru kirkjudeildir og múslímskar hreyfingar útum allt að frelsa fólkið. Í hverju og einasta þorpi er bæði moska og kirkja en ég hef ekki fundið fyrir neinum stirðleika milli trúarbragðanna hér. Þetta virðist frekar (án þess að ég viti það nákvæmlega) eins og flestir trúi bæði á galdra og guð og blanda þessu einhvernvegin saman. Trúarstofnanir eru hérna semsagt útum allt í leit að áhangendum.
ÞSSÍ styrkir nokkrar heilsugæslustöðvar í kringum Monkey Bay og eru sumar reknar af ríkinu og aðrar af trúarstofnunum. Það kom mér svolítið á óvart þegar ég heyrði að á heilsugæslustöðinni sem rekin er af kaþólsku kirkjunni er bannað að dreifa smokkum og öðrum getnaðarvörnum. Fornaldarhugsunarháttur Vatíkansins og Páfans er enn við lýði á þessari heilsugæslustöð sem er mjög sorglegt þar sem eitt alvarlegasta heilbrigðisvandamálið á þessum slóðum er alnæmisfaraldurinn sem er að draga gífurlegan fjölda fólks til dauða.
Fyrst ég er nú að ræða um trú og trúarsöfnuði í Malawí þá ætla ég að segja frá sköpunarsögu Malawa sem er skemmtileg saga sem ég heyrði frá breskri vinkonu okkar sem hefur búið í Malawí í 50 ár allt frá því að Malawí tilheyrði breska heimsveldinu á sínum tíma.
Sagan segir að guð hafi skapað heiminn og manninn á einhverjum dögum og að hann hafi verið svo hrifinn af sköpun sinni að hann ákvað að setjast að á jörðinni og bjó í sátt og samlyndi með mönnunum þar. Guð og menn lifðu sáttir saman allt þangað til maðurinn lærði að hafa vald á eldinum og fór að nota þessa uppfinningu sína óspart. Við þetta móðgaðist Guð þar sem honum fannst að mennirnir ættu að láta sér nægja aðeins það sem Guð hafði skapað og ekki fara að skapa eitthvað sjálfir. Guð ákvað því að yfirgefa mennina og jörðina og klifraði upp í skýin eftir köngulóarþræði. Eftir að hafa verið einhvern tíma í skýjunum fór Guð að linast í garð mannanna og ákvað að senda kameljónið niður til mannanna með þau tíðindi að mennirnir þyrftu ekki að óttast reiði sína og dauðann þar sem hann muni ljá þeim líf eftir dauðann. Og af stað fór kameljónið.... á sínum löturhæga hraða. Guð beið í ofvæni eftir viðbrögðum mannanna en þau létu á sér standa þar sem kameljónið var ekki ennþá komið á leiðarenda með tíðindin. Guð áttaði sig ekki á því að kameljónið væri svona hægfara og þar af leiðandi ekki búið að koma skilaboðunum til skila og gerði ráð fyrir að mennirnir væru svona rosalega vanþakklátir. Eftir ákveðinn tíma tók hann því til sinna ráða og sendi eðluna af stað með ný skilaboð um að það væri ekkert líf eftir dauðann. Og eðlan skaust af stað..... á ofsa hraða. Hún hljóp og hljóp og kom niður til mannanna með hin slæmu skilaboð um að það væri ekkert líf eftir dauðann. Við þessar fréttir fyllast mennirnir skelfingu. Stuttu síðar kemur hinsvegar kameljónið niður til mannanna með sínar góðu fréttir um að þeir þurfi ekki að óttast reiði Guðs og að það sé líf eftir dauðann. Mennirnir tóku þessum fréttum fagnandi og lofsungu Guð og miskunnarsemi hans (og gera víst enn þann dag í dag).
Já þar hafið þið það, sköpunarsögu Malawí, ég hef hinsvegar ekki mikið meira að segja þessa stundina, hafið það sem allra best, kveðja Pétur.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home