föstudagur, mars 12, 2004

Lilongwe 12.03.04

Jæja núna erum við búin að vera hérna í viku. Við urðum fyrir hálfgerðu sjokki í dag þegar við urðum vitni að hræðilegum atburði. Það gerðist þegar við Dóra vorum að sækja mömmu í vinnuna. Vinnan hennar mömmu er rétt hjá lítilli verslunarmiðstöð og bensínstöð en þegar við keyrðum framhjá þessari verslunarmiðstöð (7/eleven, ekki bandaríska keðjan) þá sáum við þessa hræðilegu sýn. Múgur hafði safnast í kringum tætingslegan mann sem var fastur í skoltum stórs Sheffer hunds. Hundurinn hafði læst sig í fót mannsins en öryggisverðir héldu í ól hundsins og voru að reyna að losa hann. Þegar þeim loksins tókst að losa hundinn stóð maðurinn upp, losaði ólar sem notaðar höfðu verið til þess að binda saman hendur hans og reyndi að koma sér í burtu en hundurinn réðst á hann aftur. Sem betur fer sáum við ekki meira, þess væri óskandi að við hefðum ekki séð þetta.
Maðurinn sem lenti í þessu hefur sennilega verið staðinn að því að stela og hlotið þessa meðferð þar af leiðandi. Þessi atburður minnir mann á það hversu grimmur heimurinn getur verið. Mannréttindabrot eru framin í heiminum á hverjum degi og því miður urðum við vitni að einu þeirra í dag. Hér fyrir sunnan lifir maður ekki sama verndaða lífi og heima á klakanum en lífið heldur áfram og við megum ekki gleyma okkur í svartsýnum hugsunum.

Fyrir utan þetta eina atvik hefur dvöl okkar hérna verið frábær. Fólkið hérna er allt mjög vingjarnlegt og vel klætt fyrir utan þó nokkra umrenninga sem oft eiga við geðræn vandamál að stríða og eru utangátta í samfélaginu. Eins og Dóra hefur nefnt var einræðisstjórn í landinu til ársins 1994. Á tímum einræðisherrans Banda var mikið af bönnum í gangi og var Malawi kallað land þagnarinnar á valdatíma hans. Malawí fékk þetta gælunafn vegna þess að allir þeir sem sögðu eitthvað sem var á móti Banda hurfu sporlaust. Eitt af bjánalegri bönnunum sem voru í landinu á hans tímum voru lögin um að konur mættu ekki vera í buxum eða stuttbuxum og þyrftu að vera í pilsi sem næði niður fyrir hné. Karlar máttu náttúrlega ekki heldur vera í stuttbuxum og alls ekki vera með sítt hár né ósnyrt skegg. Þegar Banda var ýtt frá völdum voru þessi lög felld niður en enn þann dag í dag eru malawískir karlmenn í síðum buxum í steikjandi sólinni og konurnar í síðum pilsum sem ná niður fyrir hné.

Plön okkar um að fara til Monkey Bay og dvelja þar í viku breyttust skyndilega þegar það kom í ljós að mamma væri á leiðinni með öðrum starfsmanni ÞSSÍ til Blantyre (stærsta borg Malawi) ásamt sendiherra Íslands að hitta Muluzi forseta. Í staðinn ætlum við á laugardaginn til Salima sem er í klukkutíma fjarlægð frá Lilongwe og svo niður að Malawi vatni að stað sem kallast Senga Bay en þar eru víst góðar strendur og hægt að snorkla þar innan um fjölda gullfiska sem Malawívatn er hvað frægast fyrir. Okkur er sagt að þar sé lítil sem engin hætta á að fá hina illræmdu Bilharzia sýki. En hún grasserar sumsstaðar í vatninu en þessir litlu ormar (hljómar ógeðslega) valda allskyns þvagfæra sýkingum og nýrnabilunum. Því miður er stór hluti Malawa sem búa við vatnið sýktir af þessari sýki en til eru lyf sem hægt er að taka inn ef maður sýkist. Þeir sem eru vel stæðir taka þetta lyf en þessu hefur verið líkt við það þegar dýrum er gefin ormalyf og þau hreinsa sig þannig einu sinni á ári af ormum með saurláti, ekki sérlega hugguleg tilhugsun.

Við höfum ákveðið að fara í ferðalag til Cape town um páskana, þetta verður 10 daga ferð með nokkrum starfsmönnum ÞSSÍ en við munum keyra hina frægu Garden Route frá Port Elizabeth til Cape Town. Annars hefur ekkert rosalega mikið verið að gerast hjá okkur, við erum búin að fara tvisvar í tennis og einu sinni í golf. Þetta er algjör lúxus golfklúbbur sem við erum komin í. Maður hálf skammast sín fyrir öll fínheitin í klúbbnum, við erum bara alls ekki vön þessu lúxuslífi. Þegar ég ætlaði að fara að spila golf ákváðum við Dóra að við myndum bara skiptast á að halda á golfpokanum en það var víst stranglega bannað. Þegar ég var spurður út í það hver ætlaði að halda á kylfunum benti ég á Dóru og fékk þá skrýtið augnaráð þannig að ég bætti við “she´s strong” og fékk þá ennþá skrýtnara augnaráð. Til að gera langa sögu stutta fengum við hressan kaddý sem heitir Patrick en hann kenndi mér fullt í golfi og ætlar að hjálpa mér að laga sveifluna næst. Guð hvað maður er orðinn eitthvað mikill snobbari, farinn að spila golf með kaddý. Ég er nú samt ennþá hundlélegur þannig að það breyttist ekkert þrátt fyrir allt þetta fínerí.


Jæja klukkan er orðinn margt og við leggjum snemma af stað til Salíma á morgun þannig að ég verð að kveðja ykkur í bili, Pétur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com