Lilongwe, malawi
Mulibanchi! (Góðan dag, hvernig hafið þið það! á chichewa).
Komum á áfangastað fimmtudaginn 4. mars eftir langt ferðalag. Vorum fyrst þrjá daga í London og höfðum það mjög fínt en ég nenni eiginlega ekki að segja frá því, það er svo miklu meira spennandi að segja frá héðan í Malawi. Við flugum með ethiopian airlines frá London í gegnum Addis Ababa. Eþjópía er mjög brúnt land og hver landskiki ræktaður. Malawi er líka mikið ræktað en það er fagurgrænt, allavega sá hluti sem við flugum yfir. Nú stendur regntímabilið yfir og allt er í fullum skrúða og rakinn eftir því. Maður verður líklega að venjast því að vera alltaf sveittur. Þegar við lentum á flugvellinum í Lilongwe þurftum við að bíða í röð til þess að fá dvalarleyfi, við lentum aftast í röðinni en eftir langa bið fengum við stimpilinn í passann og gátum farið að ná í farangurinn. Á leiðinni út var svo önnur röð þar sem var leitað í farangrinum en við sluppum sem betur fer við það. Margrét tók svo á móti okkur og keyrði okkur í húsið þar sem við búum. Á leiðinni fannst mér helst að ég væri að keyra í gegnum heimildarmynd, allt er svo ótrúlega öðruvísi en maður er vanur. Fólk á gangi í skrautlegum fötum og sumir með miklar byrðar ofan á höfðinu. Lilongwe sem er höfuðborg Malawi hefur verið kölluð stærsta þorp Afríku enda finnst manni alls ekki að maður sé í borg þó að hér búi 350.000 manns, það sést varla í hús fyrir gróðri og sums staðar eru moldargötur. Fyrsta kvöldið fórum við út að borða á ítalskan veitingastað og fengum ekta ítalskar pizzur, kom svolítið á óvart í hjarta Afríku. Veitingahúsið var fyrir innan víggirðingu. Hér eru líka búðir sem ríkt fólk verslar í en niðri í bæ eru líka súpermarkaðir en þar fyrir utan er allt morandi í sölumönnum að selja alls konar dót og eiginlega langar mann til að kaupa eitthvað af öllum en það er ekki hægt. Ég veit að ég á eftir að versla fullt af dóti áður en ég fer heim því að hér eru fullt af fallegum munum. Í næsta húsi búa tvær malavískar fjölskyldur með fullt af börnum. Þau eru mjög forvitin og kíkja á okkur þegar við erum fyrir utan, svo finnst þeim mjög gaman þegar Pétur nær í myndavélina og setja sig í alls konar stellingar og dansa. Í gær var Pétur úti á verönd að búa til hvítlauksbrauð og þau fylgdust grant með honum en Pétri datt í hug að þau héldu að hann væri hommi vegna þess að í Malawi vinna karlmenn ekki slík kvennastörf... Eitt sem að ég er mjög hrifin af eru ávextirnir, þeir eru einhvern veginn svo miklu sætari og ferskari en heima. Ég hef eiginlega áhyggjur af því að ég verði svo góðu vön að ég geti ekki lengur borðað ávexti þegar ég kem heim eins og Pétur sem borðar ekkert nema exotíska ávexti sem fást sjaldan í Hagkaup eftir að hann bjó í Angóla. Annars erum við búin að vera mikið inni í rólegheitum og jafna okkur eftir ferðalagið, ég skrifa meira þegar við höfum upplifað meira.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home