sunnudagur, apríl 18, 2004

Suður-Afríka

Við komum til baka úr tíu daga ferð til S-Afríku á miðvikudaginn. Erum eitthvað löt við bloggið þessa dagana þó að við lifum algeru letilífi. Við flugum til Jóhannesarborgar og keyrðum beint þaðan suður í átt að hafinu. Það var ansi mikil keyrsla fyrstu dagana en við sáum líka fjölbreytt lífið í S-Afríku. Á sumum stöðunum sem við stoppuðum sáum við varla svartan mann og arfleifð apartheid er greinilega enn sterk á sumum stöðum. Stundum fannst manni að maður væri frekar að keyra í gegnum Þýskaland en Afríkuríki. Utan við borgirnar eru svo “shanty-towns” þar sem fátæka fólkið býr sem er yfirleitt svart. S-Afríka er alveg ótrúlega ólík Malawi og miklu nútímalegri. Þó að fátækrahverfin séu alveg hræðileg er fólkið þar yfirleitt með rennandi vatn og rafmagn sem er alger munaður hér í Malawi og margir þeir sem búa í þessum hverfum eru með vinnu í miðborginni. Mér finnst samt leirkofarnir með stráþökunum hér í Malawi óneitanlega huggulegri en bárujárnshreysin í S-Afríku þó að það sé kannski ekki betra að búa í þeim.

Aðra nóttina stoppuðum við í Grahamstown hjá vinum samstarfsmanna Margrétar sem við vorum að ferðast með. Þetta eru hress og skemmtileg hjón sem tóku vel á móti okkur. Þau voru með tvo hunda, annar þeirra hafði verið með þeim í Malawi og virtist vera sakleysisgrey en þau gátu ekki losnað við hann þar því að hann hafði einhvern tíma verið í pössun annars staðar og étið pudle-hund (allavega drap hann en konan sagði “he ate it!”). Hún sagði okur líka aðra skemmtilega sögu um R og L rugling Malawanna. Tengdamamma hennar hafði komið að heimsækja þau þegar þau voru í Malawi og hafði farið í kirkju. Þar var hún alveg í vandræðum með sig af því að það var verið að segja frá gömlu fólki í Biblíunni (man ekki hvað þau heita) sem höfðu lengi reynt að eignast barn og svo var sagt: “and they pLayed and the pLayed and finally they had a baby!” Síðan var sagt: “Lets pLay for the forthcoming eRRections...”

Við keyrðum svo meðfram suðurstönd landsins hina fallegu Garden Route og stoppuðum á ýmsum fallegum stöðum á leiðinni til CapeTown. Við fórum í flotta dropasteinshella, syntum í Indlandshafinu, rákumst á bavíana á götunni og síðast en ekki síst átum eins og svín. Maturinn í S-Afríku er svakalega góður, aðallega sjávarréttir og skammtanir eru svakalegir enda margir búarnir ansi bústnir. Þarna var til dæmis ein keðja sem var næstum því eins og skyndibitastaður og seldi sjávarrétti, mjög ódýrt og gott, svona finnst mér að ætti að vera á Íslandi. Við stoppuðum svo í Cape Town í fjóra daga og mér fannst það toppurinn á ferðinni en ég ætla að leyfa Pétri að segja frá því.

Nú erum við bara búin að vera að slappa af hér í Lilongwe og förum svo til Monkey Bay á föstudaginn og í þetta skipti stoppum við kannski lengur en í viku. Svo þurfum við að fara að skipuleggja fleiri ferðir, við verðum að nýta tímann vel meðan við erum hérna, mér finnst hann vera að hlaupa frá okkur.

Gleðifréttir: Pétur komst inn í báða skólana sem við sóttum um í Kanada og fékk teaching assistantship í báðum þeirra og aukastyrk í þeim sem okkur langar meira í í Montréal. Þetta myndi allt saman dekka skólagjöldin sem er enginn smá munur! Ég er aftur á móti ekki búin að heyra neitt og er að sjálfsögðu búin að búa mig undir það versta og vakna á hverjum morgni með hnút í maganum, egóið má engan veginn við því að komast ekki inn. Það verður samt bara að koma í ljós, vonandi sem fyrst!

Dóra

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com