sunnudagur, apríl 18, 2004

Póstur frá “the warm heart of Africa”

Jæja Dóra er víst búin að tilkynna gleðitíðindin, ég komst inn í báða háskólana sem ég sótti um og fæ teaching assistant stöðu í þeim báðum og auka styrk í McGill University sem er sá skóli sem ég er spenntastur fyrir.
Eins og þið vitið flest þá erum við nýkomin úr páskaferð til Suður Afríku sem var mjög vel heppnuð. Við byrjuðum í Jóhannesarborg og enduðum í Cape Town sem er alveg ótrúlega skemmtileg borg. Þar er allt iðandi af mannlífi og mikið um hljómsveitir á götum úti sem að halda uppi ótrúlega skemmtilegri stemmingu. Í Cape Town fórum við Dóra í veiðiferð með lúxus snekkju, veiðin var ekki mikil (allir fengu eitthvað nema ég), það náðist um borð einn hákarl og nokkrir litlir rauðir fiskar. Dóra veiddi fyrsta fiskinn sinn og einn maðurinn um borð fékk alveg þvílíkt viðbragð en endaði með því að slíta línuna en ég fór heim með öngulinn í rassinum. Næst þegar ég fer að veiða í Suður Afríku ætla ég að fara á fluguveiðar en þar er hægt að veiða allskonar saltvatnsfiska á flugu, allt frá hákörlum til sverðfiska og það er ekkert grín að ná þeim á flugu.
Annað sem við gerðum í Cape Town var að fara í siglingu út í Robben Island þar sem Nelson Mandela og aðrir helstu baráttumenn Suður Afríku gegn aðskilnaðarstefnunni þar í landi voru í haldi. Í fangelsinu á Robben Island dvaldi Nelson Mandela í 18 ár af þeim 27 árum sem hann var í haldi. Á Robben Island tók á móti okkur fyrrverandi pólitískur fangi Modise Phekonyane sem var handtekinn þegar hann var 14 ára í stúdentamótmælunum 1976 og sat 5 ár í fangelsi fyrir það að vera á móti aðskilnaðarstefnunni. Þetta er ein besta og áhrifamesta “guided tour” sem ég hef farið í. Okkur var sagt frá því hvernig fangarnir gáfust aldrei upp þrátt fyrir allt mótlætið. Fangarnir breyttu fangelsinu á sinn einstæða hátt í háskóla og útskrifuðust margir úr fangelsinu með háskólagráður í hinum ýmsu fögum. Mandela átti upphafið að kennslunni með því að setja af stað “each one teach one” kerfið sem fólst í því að allir þeir sem kunnu eitthvað eða höfðu einhverja sérstaka þekkingu áttu að kenna næsta manni. Þessi kennsla þurfti að fara fram leynilega án vitundar fangelsisvarðanna og var því ekki notast við nein skriffæri heldur var kennslan algjörlega munnleg og þurftu fangarnir því að læra allt utanað og treysta algjörlega á minnið. Þetta gerði það að verkum að margir komu ólæsir inn í fangelsið en fóru út í hinn frjálsa heim menntaðir menn og urðu sumir þessara manna meira að segja ráðherrar í fyrstu lýðræðislega kjörnu ríkisstjórn Suður Afríku.
Þann ellefta apríl átti mamma afmæli og héldum við upp á það með því að bjóða henni á flottasta veitingastaðinn í Cape Town, Green Dolphin sem er veitingastaður þar sem boðið er upp á lifandi Jazz. Ég mæli með því að panta sér borð á Green Dolphin ef leið ykkar liggur til Höfðaborgar. Við sáum svo syðsta odda Afríku sem kallast Cape Agulhas (nálaroddinn) en nafnið fær hann af því að á þessum odda rugluðust kompásar Bartholomeus Dias, Vasco Da Gama og annarra suður evrópskra sæfara sem voru fyrstir manna að koma á þessar slóðir og gáfu þeir oddanum því þetta nafn.
Hér í Malawi gengur allt sinn vana gang, við erum að íhuga að fara upp á Mount Mulanje sem er annað stærsta fjall Afríku í byrjun maí. Við höfum líka komist að því að Malawísk fyrirtæki eru mjög hreinskilin eitthvað sem íslensk fyrirtæki ættu kannski að taka sér til fyrirmyndar. Um daginn sáum við auglýsingaskilti frá bakaríi sem á stóð “we are slow but we deliver” slogan sem ætti vel við Domino´s pizza eða jafnvel fæðingadeildina. Helst í fréttum hér er það að 6,5 milljónir kjósenda hafa verið skráðir á kjörskrá fyrir kosningarnar í maí en samkvæmt upplýsingum frá hagstofunni hér þá eru fólk á kosningaaldri aðeins 5,5 milljónir. Kosningasvindl er því sennilega í vændum og eiga annaðhvort dauðir einstaklingar eftir að rölta á kjörstað eða hópar útlenskra manna sem smalað hefur verið saman til þess að kjósa. Stjórnmálaástandið er því mjög áhugavert um þessar mundir og það verður spennandi að fylgjast með næsta mánuði. Jæja ég er búinn að bulla nóg, næsta verkefni verður að reyna að koma nokkrum myndum frá Suður Afríku á netið.

Baráttukveðja Pétur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com