sunnudagur, júní 13, 2004

Af krókódílum og prestum...
Gleðifréttir: Nú erum við aftur komin með internet-tengingu heima og verðum kannski eitthvað duglegri að skrifa en undanfarið, þ.e.a.s. ef við höfum tíma því að það er ansi margt sem við þurfum að gera áður en við förum heim og það er ekki langt í það. Við komum sem sagt heim föstudaginn 2. júlí. Já, Ragna ég hef líka miklar áhyggjur af því að hitta þig og hina Danina ekkert áður en við förum til Kanada en ég er ekki viss um að fjárhagurinn leyfi skemmtiferð til Aarhus í sumar. Þið verðið bara að kíkja aðeins heim...
Um síðust helgi fórum við í veiði í Bua-river. Pétur og Dóri voru reyndar búnir að fara þangað ásamt fleiri Íslendingum en þá vorum við Agga bara geymdar hjá gististaðnum en nú fékk ég að fara með og kíkja á krókódílana sem búa í ánni. Það var sem sagt vopnaður skáti með okkur til að passa að við yrðum ekki krókódílum, fílum eða öðrum skeppnum að bráð. Við sáum reyndar enga fíla en þeir höfðu samt greinilega verið nýlega á ferðinni þarna. Veiðin var mjög lítil en þetta var samt fín ferð. Ég var mestan tímann í sólbaði því að ég er farin að hafa verulegar áhyggjur af því að koma snjóhvít heim frá Afríku því að það er kominn vetur hér og ekki alltaf sólbaðsverður en það er að sjálfsögðu óafsakanlegt að koma hvítur heim...
Á fimmtudaginn fórum við svo á vegum Lútherska heimssambandsins að skoða þróunarverkefni sem hjálparstarf íslensku kirkjunnar er að styrkja og vorum bara að koma heim í gær. Við heimsóttum þorp í Suðurhluta landsins þar sem verið er að kenna fólkinu dýrahald og láta það hafa hænur, geitur og svín og svo er búið að setja upp þarna lítil áveitukerfi. Það var mjög fróðlegt og skemmtilegt að sjá þetta og fólkið var mjög þakklátt og sagði að draumur hefði ræst. Það er víst mikið um þurrka og flóð á þessu svæði sem er beint undir hæsta fjalli landsins og mjög fallegt og því verður oft uppskerubrestur og fæðuskortur. Við ætlum svo að skrifa stutta grein um ferðina og láta hjálparstarf kirkjunnar fá hana og myndir sem við tókum. Við gistum báðar næturnar í Blantyre sem er stærsta borg landsins og seinna kvöldið bauð biskupinn okkur út að borða ásamt biskup og presti frá Botswana og prestum frá USA og Þýskalandi. Ég er viss um að ég hef litið út eins og heittrúaður trúboði þegar ég arkaði inn á veitingastaðinn með þessum hóp í síðu pilsi, flíspeysu og sandölum og algjörlega ómáluð og ótilhöfð en ég hafði ekki gert ráð fyrir því að þurfa að klæða mig upp í þessari ferð. Við P höfðum nú smá áhyggjur af því að það yrði bara talað um guð allt kvöldið og við hefðum lítið til málanna að leggja en þetta reyndust vera hinir skemmtilegustu menn. Biskupinn sagði okkur til dæmis sögu af öpunum í Monkey Bay sem eru mikil plága á maísökrunum. Einhver bóndinn ákvað að leika aðeins á þá. Hann vissi að þeir væru svakalega forvitnir og fór út að steini á miðjum akrinum þar sem að hann vissi að aparnir í trjánum gætu fylgst með honum. Svo fór hann að brýna hnífinn sinn á steininum og lagði svo óbeitta hluta eggjarinnar að hálsinum og þóttist skera og fór svo í burtu en skildi eftir hnífinn. Þá komu aparnir sem voru alveg búnir að gleyma maísnum og fóru að herma eftir honum. Fyrsti apinn fór að brýna hnífinn og lagði svo eggina upp að hálsinum og skar... og dó! Svo næsti og svo næsti þar til að um átta apar voru fallnir í valinn. Sumir bændurnir eru aftur á móti góðhjartaðri og vilja ekki drepa apana þannig að þeir fara nokkrir saman út á miðjan akurinn með heimabruggaðan bjór í kút sem þeir láta ganga á milli sín og drekka af. Þegar þeir fara koma aparnir og herma eftir þeim þar til að þeir eru orðnir blindfullir og löngu búnir að gleyma maísnum! Þið ráðið alveg hvort að þið trúið þessari sögu en mér finnst hún skemmtileg.
Við ætlum að sjálfsögðu ekki að stoppa lengi í Lilongwe frekar en fyrri daginn og er stefnan tekin á Jóhannesarborg á morgun þar sem við ætlum að gista í fjórar nætur á lúxus-hóteli en þetta er svona pakkaferð og það er víst ekkert mikið dýrara en að vera í ódýrari gistingu. Ég hlakka mikið til og segi ferðasögu þegar við komum til baka. Svo ætla ég að reyna að fá Pétur til að skrifa líka og svo eigum við fullt af myndum sem við þurfum að fara að setja inn.

Dóra

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com