Allt í einu fékk ég skyndilega löngun til að blogga. Það er kannski allt of seint og allir löngu hættir að kíkja á þessa síðu en það má reyna. Í versta falli fæ ég útrás fyrir bloggþörf án þess að nokkur lesi það sem ég hef að segja. Þessi þörf kemur helst yfir mig þegar ég sit ein á laugardagskvöldi eins og nú og sötra hvítvín og hlusta á stuðtónlist. Nú er The Go! Team á fóninum, það finnst mér mikið stuð.
Ég er líka búin að vera að spá í hvort að ég eigi að þora að vera með svolítið pólitískara blogg en hingað til en ég er ekki viss um að ég þori...
Ég er líka búin að vera að spá í hvort að ég eigi að þora að vera með svolítið pólitískara blogg en hingað til en ég er ekki viss um að ég þori...

5 Comments:
Ég er alltaf að kíkja á þessa síðu og vonast eftir bloggi!! Svo áfram með þig Dóra, meira blogg!
Og auðvitað þorirðu að vera pólítísk, það væri samt líka gaman að fá fréttir af daglega lífinu...
Knús frá DK.
Fyndið....það eru margir mánuðir síðan ég kíkti hingað síðast og svo allt í einu kíki ég og þá ertu bara nýbúin að skrifa. Örugglega merki um að þú eigir að skrifa það sem þig langar....við hvað ertu hrædd? Að einhver sé ekki sammála þér? Er það ekki bara alltílæ?
Nú ætla ég að fara að kíkja aftur reglulega.
Hrefna
Skrifa meira, ekki hætta núna!
Koma svo --- hvernig gekk sumarið fyrir sig, voru allir góðir við þig í vinnunni? Hvað ertu að læra núna?
Er blogglöngunin horfin aftur?!?!
Skrifa ummæli
<< Home