Jæja smá blogg frá einbúanum á Avenue Henri- Julien (ljósmyndir tengdar þessum skrifum má finna fyrir neðan),
Ég er reyndar enginn einbúi þó svo að Dóra sé farin til Íslands, japanski vinur minn Tak er orðinn herbergisfélagi minn. Við erum heldur betur búnir að ver duglegir undanfarnar vikur. Um helgina fengum við hana Elise vinkonu okkar og garðyrkjusérfræðing til að stjórna aðgerðum í bakgarðinum okkar. Við tókum okkur til og gróðursettum blóm, krydd og klifurplöntur. Dóra væri ekkert smá ánægð með garðinn núna, vonandi helst hann bara svona flottur þangað til í ágúst þegar hún kemur aftur. Eftir vel heppnaðan dag gróðursetningar og bjórsmökkunar mættu síðan fleiri vinir í grillveilslu í “nýja” garðinum. Þetta var mjög velhappnað kvöld, góður matur, skemmtilegt fólk og gott vín.
Annars er mikið að gera í skólanum, ég næ að læra miklu meira þegar það er enginn Dóra til að “afvegaleiða” mig. Það er samt mjög tómlegt án hennar. Með góða veðrinu kemur ávallt mikið af skemmtilegum uppákomum hér í Montreal, það eru nánast matarboð, partý og grillveislur í hverri viku. Í gær vorum við Tak í matarboði hjá Dave og Carolinu, í því boði var franskur mannfræðinemi og brasilísk eiginkona hans svo að stór hluti kvöldsins fór í það að tala portúgölsku, reyndar voru gestir mjög alþjóðlegir eins og gengur og gerist í Montreal þannig að umræður fóru ýmist fram á ensku, frönsku, sænsku, portúgölsku eða spænsku, einstaklega skemmtilegt fyrir mig. Í kvöld er ég svo að fara á tónleika með Sunset Rubdown ásamt Gillian. Fyrst þarf ég samt að reyna knýja fram sigur með fótboltaliðinu mínu. Fyrsti útileikurinn í vordeild McGill háskóla byrjar í kvöld. Þar sem ég er fyrirliðinn þá þurfum við að reyna að finna út hver á að spila í hvaða stöðu osfrv... Bæði liðin sem ég var með í innanhúsboltanum unnu deildir sínar í vetur (sjáið myndirnar fyrir neðan), ég var annar og fjórði markahæstur í sitthvorri deildinni með 14 og 11 mörk (smá mont!), þannig að allir eru frekar bjartsýnir á útideildina en ég held að hún verði miklu erfiðari þar sem við erum að spila á stærri velli og þurfum á miklu meira skipulagi að halda en í innanhúsboltanum.
Eins og gefur að skilja er hálf einmanalegt án Dóru, en við náðum þó að slappa aðeins af í Boston áður en hún fór heim. Boston er falleg og skemmtileg borg. Hún gengur undir dulnefninu “evrópskasta” borg Bandaríkjanna. Leiðsögumaður okkar og húsráðandi í Boston var hann Jóel vinur okkar en hann sýndi okkur borgina, veitingastaðina, barina, klúbbana og svo háskólana, MIT (skólan hans) og Harvard. Ég gæti sko alveg hugsað mér að flytja til Boston og taka út einn til tvo “post-doca” eða eina prófessorstöðu við Harvard, ég læt mig dreyma.
Sorrý hvað þetta er eitthvað egósentrískt blogg, það er hinsvegar laust við all “teóríu” og pólitískan pirring sem margir kunna eflaust að meta. Dóra er farin þannig að það eru engar skemmtilegar sögur af henni og svo þekkja lesendur lítið til Tak. Til að kynna ykkur fyrir Tak þá er hann japanskur mannfræðinemi sem er sérlega góður kokkur, sérstaklega þegar kemur að austurleskri (þá á ég við asískri) matargerðarlist. Hann er frægur fyrir að halda sushi partý þar sem fólk eyðir kvöldinu í að búa til sitt eigið sushi, drekka Sake (japanskt hrísgjónavín) og spjalla um daginn og veginn.
Jæja gott í bili, þarf að snúa mér að öðrum skrifum og undirbúa mat (tékkiði á myndunum fyrir neðan).
Pétur

Georg Washington ríður hesti sínum í Boston
Dóra og Jóel á Harvard campus (smá yfirlýst)
Takless, stelpu og strákaliðið að fagna meistaratitlinum
MTL Wanderers, strákaliðið að fagna meistaratitlinum


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home