föstudagur, mars 16, 2007

Fyrir þá sem ekki vita þá verð ég á Íslandi í sumar að vinna. Ég kem heim í lok apríl og verð fram í lok ágúst. Pétur verður hérna í Montréal en Tak vinur okkar ætlar að leigja með honum svo að hann verði ekki allt of einmana og það er líka ágætt að fá hjálp við að borga leiguna. Hann kemur samt í ca. mánuð frá miðjum júní fram í miðjan ágúst. Ég hlakka mikið til að koma heim og hitta alla en veit að ég á samt eftir að sakna Pésa og Montréal.

Það hlýnaði aðeins fyrri part vikunnar og ég held að þetta sé í fyrsta skipti á ævinni sem ég hef verið ánægð með 5 gráðu hita og rigningu. En að sjálfsögðu er aftur búið að kólna og í kvöld á að vera snjóstormur, sem er reyndar ekki svo slæmt því að við erum að fara í snjóbretti á morgun. Það er svo mikill lúxus að geta farið út í stuttum jakka og ekki í síðri kápu eða gammosíum án þess að gallabuxurnar frjósi fastar við lærin á manni :-)

Við erum búin að fara á tvenna tónleika nýlega. Fyrst fórum við hjónin saman að sjá hljómsveit sem heitir TV on the Radio. Mér fannst þeir frábærir. Svo fórum við með nokkrum vinum að sjá danska bandið Under Byen (eða önder bæen eins og Cameron vinur okkar ber það fram). Við byrjuðum á að fá okkur að borða á La Sala Rosa sem er spænskur tapas-staður en tónleikarnir voru haldnir í sal fyrir ofan veitingastaðinn. Þetta er frekar róleg og þunglyndisleg músík en samt mjög flott. Við vorum öll í svaka stuði og kannski aðeins of hátt stemmd fyrir tónleikana. Það er um að gera að nýta sér alla þessa tónleika og ódýran mat meðan maður er hérna.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com