sunnudagur, mars 04, 2007

Afmæli og fleira

Ég átti alveg frábæran afmælisdag á snjóbretti á Le Massif, sem er eitt stærsta og besta skíðasvæðið hér í Québec. Það var sól og blíða, fínt færi og síðast en ekki síst geggjað útsýni yfir St. Lawrence ánna. Um kvöldið fórum við svo út að borða á lítinn kósí veitingastað í þorpinu þar sem við gistum. Ég skemmti mér svo vel um kvöldið með snjóbrettafélögum og ég held að meðalaldurinn hafi verið rétt um tvítugt (meira að segja þó að ég hafi dregið hann svolítið upp)...



















Gáfulegt 30 ára afmælisbarn í ullarnærfötum...















Pési að slappa af eftir góðan dag á snjóbretti

Svo héldum við svaka partý á laugardeginum eftir að við komum heim úr ferðinni og hér koma nokkrar myndir frá því. Það voru örugglega allavega 60 manns þegar mest var og dansstemningin náði nýjum hæðum þegar Martin og Gillian drógu fram 80´s disk sem þau voru búin að mixa fyrir þetta tilefni.















Af hverju er enginn an dansa við afmælisbarnið?















Martin og Cameron í góðum gír, Martin bakaði köku og Cameron hélt ræðu þar sem hann náði að segja Halldóra Hrólfsdóttir allavega 10 sinnum...




















Afmæliskakan sem Martin bakaði.

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Vei, en gaman að sjá myndir! Mér þykir þið Pétur vera annsi dugleg í drykkjunni ef ykkur hefur tekist að drekka allan þennan bjór á 5 daga skíðaferðalagi! Hvenær var skíðað eiginlega?!?!
Hefði verið meira en til í að mæta í afmælispartý en við verðum bara að halda vel uppá afmælin í sumar! Veivei!
Bið að heilsa, knús, Gunnþóra

4:10 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hmmmm, sko, við Pétur áttum ekkert í þessum bjór. Snjóbrettaklúbburinn var að selja þetta á kostnaðarverði og við vorum svo heppin að vera með formanni klúbbsins í herbergi... Eins gott að hafa þetta á hreinu!
Hlakka líka til að halda upp á afmæli í sumar Gunnþóra!

10:32 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sæt kaka. Má ég fá bita ?

11:04 f.h.  
Blogger Halldora said...

Að sjálfsögðu Hrafnhildur, gjörðu svo vel! Bið að heilsa.

7:31 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

innilega til hamingju með afmælið dóra mín. lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en 20:)

partýið hefur verið geggjað, svona endalaust margar léttvínsflöskur útlandapartý, klikkar ekki;)

2:40 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com