föstudagur, nóvember 03, 2006

Blóð, sviti og tár...

Nei, þetta eru smá ýkjur. Ég bara hélt að við værum komin í smá pásu í skólanum og þá byrjar allt stressið aftur margfalt en þetta er bara gaman. Góðu fréttirnar eru hins vegar að nú er Pétur kominn í smá pásu en hann er búinn að standa á haus í að kenna og sækja um styrki, sem ég reyndi aðeins að hjálpa honum með. Hann reyndi m.a.s. að borga mér fyrir að skrifa fyrir sig styrkjarumsókn en mér tókst á endanum að sannfæra hann um að það gengi ekki þar sem við erum hjón og með sameiginlegan fjárhag. Ég las samt yfir fyrir hann og lagaði heilmikið og passa mig auðvitað á því að minna hann reglulega á að hann skuldi mér :-) Núna getur hann loksins farið að vinna í að undirbúa doktorsnámið.

Í síðustu viku þurftum við að útbúa okkar eigin plan um hvað við vildum gera til að takast á við vandamál hverfisins sem við erum að stúdera. Við þurftum að teikna diagram og halda 2-3 mínútna "fyrirlestur" og mér tókst auðvitað aftur að stressa mig ógurlega en það gekk samt mun betur en síðast, æfingin skapar meistarann... Nú er aftur búið að skipta okkur í hópa og við eigum að koma með tillögur að hvernig megi bæta hverfið og minn hópur á að leggja sérstaka áherslu á íbúðahúsnæði. Þetta er mjög spennandi og ég held barasta að ég sé í góðum hóp. Ég er með Chee hinum ofvirka, athyglissjúka og sjúklega skipulagða, Shuang sem er mjög hlédræg og feimin kínversk kona en líka mjög klár og Russell sem ég var líka með síðast í hóp og kann vel við.

Um síðust helgi var Halloween og við fórum á hið árlega Thomson House partý og ég held barasta að ég hafi aldrei skemmt mér jafnvel! Ég var Dora the Explorer wanna-be, sem var einstaklega þægilegur búningur, strigaskór, pils, stuttermabolur, regnkápa, regnhlíf og síðast en ekki síst bakpoki með plástrum sem komu að góðum notum... Pétur var Mr. Globalization (the first person to be 100% globalized) sem féll náttúrulega algerlega í kramið hjá mannfræðingunum! Við þurftum að borða á McDonald´s og Burger King tvo daga í röð til að fullkomna búninginn en ég er ekki mikill aðdáandi þessara staða enda óverdósaði ég af McDo í Frakklandi.

Dora the Explorer stollt af plástrinum sínum

Mr. Globalization þungur á brún

Við fórum í bíó í gær á Last King of Scotland sem er um Idi Amin einræðisherra í Uganda sem stóð á bak við fjöldamorð á þjóðinni á 8. áratugnum. Þetta var alveg rosalega áhrifamikil mynd og mér fannst aðalleikararnir standa sig alveg ótrúlega vel, bæði Forest Whitaker og skoski strákurinn. Mæli með henni (ekki fyrir viðkvæma).

Um daginn fórum við á Little Miss Sunshine, sem mér fannst alveg frábær, svona mynd sem kemur manni í gott skap, mæli líka með henni.

Síðast en ekki síst vil ég mæla með nýjasta Beck-disknum, alger snilld, fyrsta flokks partýmúsík.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com