Á jákvæðari nótum...
Við horfðum á myndbandið sem var tekið á fyrirlestrinum en sem betur fer vantaði hljóðið vegna tæknivandamála :-) Þetta var nú ekki alveg eins slæmt og ég hélt (kannski vegna þess að það vantaði hljóðið...) og allir voru voða almennilegir og komu með vinsamlegar ábendingar. Það var m.a.s. sérstaklega minnst á það að það hefði verið gott hjá mér að taka pásu og draga andann til að létta á spennunni! Kannski vorkenna mér bara allir en mér er alveg sama, þetta er búið.
Í kvöld ætla ég að fara í partý með fyrrverandi vinnufélögum mínum til að halda upp á að þetta sé afstaðið. Reyndar tekur alltaf eitthvað annað við. Fyrri part annarinnar höfum við verið að greina vandamálið út frá mismunandi þáttum, ég var í hóp sem átti að skoða byggt og náttúrulegt umhverfi (built and physical environment) og nú eigum við að koma með lausnir. Við þurfum því hvert og eitt okkar að halda 2-3 mínútna fyrirlestur og útbúa kort og memo með okkar hugmyndum fyrir næstu viku. Út frá því verður svo raðað í næstu hópa sem eiga að koma með lausnir. Mér finnst þetta mjög spennandi.
Hópurinn minn með töflurnar okkar, sem þóttu einfaldar en skýrar (tekið skal fram að við vorum hvött til að gera allt í höndunum og ekki í tölvu): Russell hinn montrealski, Sherry hin saskatchewanska, Silvia hina ítalska og Dóra hin íslenska í fúlu skapi
Tekur einhver eftir því hvað ég reyni mikið að komast hjá því að nota enskuslettur?
Við horfðum á myndbandið sem var tekið á fyrirlestrinum en sem betur fer vantaði hljóðið vegna tæknivandamála :-) Þetta var nú ekki alveg eins slæmt og ég hélt (kannski vegna þess að það vantaði hljóðið...) og allir voru voða almennilegir og komu með vinsamlegar ábendingar. Það var m.a.s. sérstaklega minnst á það að það hefði verið gott hjá mér að taka pásu og draga andann til að létta á spennunni! Kannski vorkenna mér bara allir en mér er alveg sama, þetta er búið.
Í kvöld ætla ég að fara í partý með fyrrverandi vinnufélögum mínum til að halda upp á að þetta sé afstaðið. Reyndar tekur alltaf eitthvað annað við. Fyrri part annarinnar höfum við verið að greina vandamálið út frá mismunandi þáttum, ég var í hóp sem átti að skoða byggt og náttúrulegt umhverfi (built and physical environment) og nú eigum við að koma með lausnir. Við þurfum því hvert og eitt okkar að halda 2-3 mínútna fyrirlestur og útbúa kort og memo með okkar hugmyndum fyrir næstu viku. Út frá því verður svo raðað í næstu hópa sem eiga að koma með lausnir. Mér finnst þetta mjög spennandi.
Bekkurinn, aftari röð: Greg, Dóra, Jenna, Pilar, Julia, Chee, Rahul, Andrew, José
Fremri röð: Sherry, Russell, Dan, Mary, Shuang, Silvia, Ilja, Mark, Jen
Fremri röð: Sherry, Russell, Dan, Mary, Shuang, Silvia, Ilja, Mark, Jen
Hópurinn minn með töflurnar okkar, sem þóttu einfaldar en skýrar (tekið skal fram að við vorum hvött til að gera allt í höndunum og ekki í tölvu): Russell hinn montrealski, Sherry hin saskatchewanska, Silvia hina ítalska og Dóra hin íslenska í fúlu skapiTekur einhver eftir því hvað ég reyni mikið að komast hjá því að nota enskuslettur?


8 Comments:
Ég hvet þig áfram í þessu fagi, enda mjög skemmtilegt. Fjölskyldan er jafnvel að hugsa um að flutning til Kanada þar sem kallinn hefur hug á doktorsnámi. Guelph og Montreal eru inni í myndinni.
Hæ hæ Dóra sæta:)
Alltaf svo gaman að lesa bloggið þitt, kíki á það á hverjum degi. Svo fyndið að sjá myndina af bekknum þínum, að sjá Mary þar. Fyndið hvað heimurinn er lítill. Bið innilega að heilsa henni:)
Hlökkum svo ótrúlega til að fá ykkur heim um jólin.
Knús og kram
Anna Lilja, Elli og litli kútur.
Hæ Óskar, hvern hefði grunað fyrir fjórum árum að ég myndi enda í skipulagsfræði? Þetta er mjög skemmtilegt og krefjandi, sérstaklega þar sem fæst okkar hafa mikinn bakgrunn í faginu. Ég mæli eindregið með Montreal, frábær borg. Guelph er bara lítill háskólabær en örugglega mjög huggulegur, ég hef aldrei komið þangað. Endilega láttu mig vita hvað þið gerið!
halló,
ég rambaði inn á þessa síðu fyrir algjöra tilviljun...var að leita að einhverju um patrick watson. ég bý í montreal og hef búið í rúm fjögur ár. man ekki eftir að hafa hitt þig hérna. hmmm...
endilega sendu mér e-mail...stina@stinastud.com
:-)
ahahhaha...dóra ég elska þig...en ég hef séð þó nokkrar betri myndir af þér...þessi neðri er sérlega skemmtileg af þér ef maður stækkar hana;)
svo veit ég að þér hefur gengið vel, þú ert bara svo kröfuhörð...
er þetta allur hópurinn...engir sætir strákar!!
Díííí hvað ég væri til í að púla þarna með þér,öfunda þig niður í tær.
Ha, ha, Hrafnhildur, þetta væri nú örugglega ekkert púl fyrir þig, ætli þú kunnir þetta ekki mestallt. Bið kærlega að heilsa þeim sem ég þekki á VST. Hver veit nema ég reyni einhvern tíma að fá vinnu þar sem skipulagsfræðingur!
Heiður, talandi um að vera kröfuhörð: það eru fullt af sætum strákum með mér í bekk! En þeir eru næstum allir á föstu þannig að þú þarft ekki að hafa áhyggjur af að missa af neinu...
Skrifa ummæli
<< Home