mánudagur, júlí 03, 2006

Mais Ils sont où, les Brésiliens… (Hvar eru Brassarnir?)

Þetta var gólað á háa c-inu ásamt fleiri frönskum fótboltasöngvum úti á einni aðalgötu Montréal (St. Denis) sem að lögreglan lokaði tímabundið eftir leikinn á laugardaginn þegar sigri hrósandi Frakkarnir og aðrir stuðningsmenn franska landsliðsins þyrptust út á götu og stemningin var alveg geggjuð. Það er greinilega fullt af Frökkum hér í Montréal og í þetta skiptið voru fagnaðarlætin alls ekki hógvær.

Það er líka fullt af Brasilíumönnum hér og við Pétur horfum á leikinn ásamt mörgum þeirra á einum barnum undir trumbuslætti og sambatakti en sem betur fer voru nokkrir Frakkar þar líka þannig að ég gat fagnað með mínum mönnum. Brassarnir tóku samt tapinu af mikilmennsku (þrátt fyrir að nokkur tár féllu) og fóru í skrúðgöngu niður eftir St. Denis og mættu Frökkunum fyrir utan einn franska barinn.

Við komum við heima eftir leikinn enda búum við rétt hjá og Pétur skellti mér í frönsku landliðstreyjuna sína og svo fórum við aftur út og tókum myndir og vídeó af stemningunni. Nú spái ég að það verði Frakkar og Þjóðverjar í úrslitum og ég vona að Frakkarnir vinni þó að það væri nú gaman fyrir Þjóðverjana að vinna á heimavelli. En nóg um boltann í bili, hvað er eiginlega að gerast með mig?

Við héldum smá grillpartý á laugardaginn í tilefni af afmæli Péturs og Kanada. Við hálfsáum eftir að hafa gert það þegar við upplifðum stemninguna úti á götu en það dró úr henni og partýið var bara mjög skemmtilegt þó að ekki mættu allir sem við buðum enda lítill fyrirvari og nóg um að vera. Gillian bakaði afmælisköku handa Pétri en hún er mikill bakari og setti barbídúkku í stripparafötum í miðja kökuna en það var mín hugmynd, verð að setja inn mynd af henni við tækifæri.

Nú er djassfestivalið í fullum gangi og það er mjög skemmtilegur tími, mæli með því að einhverjir kíki í heimsókn á þeim tíma á næsta ári. Nokkrar götur eru lokaðar niðri í miðbæ og mörg svið úti á götu með ókeypis tónleikum og svo eru líka aðrir sem hægt er að borga sig inn á. Á föstudaginn kíktum við Pétur aðeins niður í bæ og sáum tónleika með gaur sem kallar sig Socalled og er héðan frá Montréal og spilar einhvers konar hipp hopp en algerlega með eigin stíl og syngur meðal annars á jiddísku, mjög skemmtilegt.

Í gær fór ég svo á tónleika með Catpower sem var náttúrulega alveg geggjað, hún er tvímælalaust með flottustu rödd í heimi. Hún var bara ein á sviðinu og skiptist á að spila á píanóið og gítarinn og þetta var mjög flott hjá henni. Hún er svolítið sérvitur og flippuð og blaðraði inn á milli og var bara svolítið fyndin. Hún var meðal annars að segja frá því að hún væri búin að vera þurr síðan í febrúar en hún drakk víst ansi mikið fyrir og var eiginlega bara að gera grín að sjálfri sér.

Sem sagt góð löng helgi sem hefði mátt vera lengri...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com