þriðjudagur, júní 27, 2006

Pétur kom úr 10 daga veiðiferðinni tveimur dögum fyrr en áætlað var mér til mikillar ánægju, hann kom seint á föstudagskvöldið svo að ég fékk að hafa hann aðeins hjá mér yfir þessa löngu helgi. Ég var búin að kaupa handa honum angólska fótboltalandsliðsbolinn í afmælisgjöf, sem ég hafði pantað og fékk ekki fyrr en eftir að þeir duttu úr keppni en ég vissi að Pétur væri alveg til í að eiga hann þrátt fyrir það því að þetta er í fyrsta skipti sem þeir keppa á HM. Ég var svo spennt að gefa honum bolinn þó að afmælið hans sé ekki fyrr en næsta laugardag (1. júlí = Canada Day) að ég gat ekki beðið og hann var rosa ánægður.

Þessi helgi var löng því að á föstudaginn var St. Jean-Baptiste, sem er þjóðhátíðardagur Québec og svo var líka formúlan hérna þessa helgi svo að það var nóg um að vera. Við tókum því samt frekar rólega og fórum bara í pikknikk með fullt af vinum á laugardagskvöldið sem var mjög huggulegt. Svo horfðum við á nokkra fótboltaleiki og ég get svo svarið það, ég er bara orðin svolítið spennt fyrir þessu. Það er svo rosaleg stemning hérna því að það er fólk frá öllum heimshornum. Við horfðum t.d. á Holland-Portúgal á portúgölskum bar rétt hjá okkur og það var þvílíkt gaman enda var þetta svakalegur leikur eins og þeir vita sem sáu hann. Það er eiginlega alveg ótrúlegt að ég hafi tekið fótboltaleik fram yfir sólbað því að veðrið var alveg geggjað en það vildi reyndar svo heppilega til að það voru opnir stórir gluggar á barnum og leggirnir á mér voru í sól…

Þessi helgi er líka löng því að það er frí á föstudaginn vegna þess að þjóðhátíðardagur Kanada er á laugardaginn. Hér eru allir frídagar færðir á næsta virka dag ef þeir falla á helgi, sem betur fer því að þeir eru ekki svo margir. Nú er bara eftir rúmur mánuður af vinnu hjá mér og ég get ekki sagt að ég sé svekkt yfir því, er eiginlega farin að telja niður dagana. Við ætlum bara að vera í bænum um næstu helgi og kannski halda smá grillpartý í tilefni af Canada/Peter´s B-Day. Svo stefnum við á stuttar helgarferðir út fyrir borgina í júlí en ég verð að segja að mig langar ansi mikið til að komast aðeins út í náttúruna. Leiðinlegt blogg er betra en ekkert blogg, er það ekki?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com