Innflutningspartý
Innflutningspartýið á laugardaginn heppnaðist mjög vel og fullt af fólki mætti. Reyndar þekkti ég ekki suma því að Pétur fékk sér aðeins í glas eitt kvöldið á mannfræðiráðstefnunni sem hann var á í síðustu viku og bauð fullt af fólki frá öðrum háskólum og nokkrir þeirra létu sjá sig í partýinu. En það var bara skemmtilegt að hafa fleira fólk. Reyndar virðumst við eiga miklu fleiri vini hérna í Montréal en heima á Íslandi og hér er fólk á okkar aldri ekki komið í pakkann með maka og börn svo að enn eru allir til í smá djamm. Sumir hafa samt meira úthald en aðrir og flestir voru farnir um þrjúleytið en það var harður kjarni eftir sem endaði á að fara með Pétri á morgunverðarstað klukkan 7 um morguninn en þá var ég nýfarin að sofa.
Þessi mynd var tekin daginn sem við fluttum inn þegar við vorum að "jafna okkur" eftir flutningana... Tak, Ari, Cibyl, Julia, hnakkinn á Guðrúnu, Martin, Claudine, Michael og Dóra
Ég er búin að taka mér frí í vinnunni á fimmtudaginn og föstudaginn og svo er frídagur á mánudaginn og við hjónakornin ætlum að skella okkur til Toronto að heimsækja Heather vestur-íslensku frænku hans Péturs og kíkja svo aðeins á Niagara. Ferðasagan og myndir verða settar inn í næstu viku. Ég held í alvörunni að ég hafi aldrei hlakkað jafnmikið til að fá fimm daga frí, er gjörsamlega að fara á límingunum hérna í vinnunni eftir að ég komst inn í skóla, get ekki beðið eftir ágúst.
Bless í bili,
P.s. ok, er ekki alveg að fatta þetta blogg, þarf víst að pósta annað með fleiri myndum.

1 Comments:
Ok, á í einhverjum vandræðum með þetta. Fleiri myndir verða að bíða í bili :(
Skrifa ummæli
<< Home