mánudagur, apríl 17, 2006

"In the Ghetto"


Dóra fer í skóla og Pétur fær gráa fiðringinn…

Jæja, vegna pressu frá ónefndum aðilum hef ég drifið mig í að blogga. Þetta er að verða svona árlegur viðburður hjá mér. Helstu fréttirnar eru reyndar ekki af mér, heldur henni Dóru. Dóra var að fá email frá McGill þar sem henni var tilkynnt að hún hafi fengið inngöngu í meistaranám í “Urban Planning” (skipulagsfræði), nú þarf bara framhaldsnámsdeild McGill háskóla að samþykkja Dóru (sem hún eflaust gerir) til að hún geti hafið námið. Við vorum líka að fá lyklana að nýju íbúðinni okkar í síðustu viku og munum sennilega flytja bráðlega. Nýja íbúðin er stærri, þannig að það verður pláss fyrir gesti (hint, hint) og svo erum við með smá port, þannig að það verður hægt að sitja úti og grilla í sumar. Sumarið er að koma og snjóbrettatíminn er liðinn þannig að ég er búinn að vera svolítið eirðarlaus, venjulaga á þessum tíma árs hef ég hugann við fiskveiðar og hef aðeins haft hugann við það hér. Var að panta mér fjórsamsetta Sage stöng fyrir línu 6 (þeir sem ekki hafa áhuga á fluguveiðum, þá er þetta veiðistöng) þannig að ég verð tilbúinn í veiði í sumar. Við erum endanlega búin að ákveða að fara ekki til Íslands í sumar sökum peningaleysis (sá sem sér að mestu um að afla heimilinu tekna er jú að fara í skóla) þannig að það verður engin veiði í Mývatnsveit eða Skagaheiði þetta sumarið. Ég og Michael vinur minn frá Nýja Sjálandi munum þó sennilega fara í vikulangan veiðitúr um miðjan Júní til Gaspésie í Quebec fylki þar sem við munum veiða Atlantshafslax. Svo verða líka önnur veiðitækifæri um helgar í kringum Montreal.

MA ritgerðarskrif ganga ágætlega og er ég kominn með nokkra kafla í ritgerðinni og farinn að halda fyrirlestra um rannsóknina mína. Það er reyndar erfitt að sitja inni í góða veðrinu og skrifa ritgerðir. Í síðustu viku keypti ég mér hjólabretti til að hafa eitthvað skemmtilegt að gera á milli þess sem ég læri. Því hefur verið fleygt fram að ég sé heppin að fá gráa fiðringinn svona ungur vegna þess að hjólabretti er mun ódýrara en sportbíll. Þetta hefur hinsvegar verið langþráður draumur sem ég lét rætast, þannig að ef þetta tengist eitthvað gráa fiðringnum þá fékk ég hann ansi ungur. Orri (í Ottawa) sagði mér að fólk sem hafði verið mikið á hjólabretti þegar það var ungt væri yfirleitt mjög fljótt að ná þessu aftur og eftir 13 ára fjarveru frá hjólabretta íþróttinni verð ég að segja að ég er enn bara nokkuð góður, get rennt mér útum allt og er meira að segja farinn að gera nokkur trick (sjáiði myndirnar).

Sumarið er greinilega að koma þar sem fólk er farið að fylla alla almenningsgarða, kastandi frisbí diskum, spilandi á bongótrommur, spilandi hakkísakk og gerandi allskonar aðra skemmtilega sumarhluti. Stríður straumr hljómsveita til Montreal hefur einnig aukist og er það orðið þannig að það er meira úrval af tónleikum en myndum í bíó um þessar mundir. Bráðlega byrja svo öll festivölin og þegar hitinn fer að rísa enn meira verða öll “terasse” á litlum veitingahúsum, kaffihúsum og knæpum yfirfull af glaðlyndum björsötrurum. Júní mánuður verður sennilega svolítið spes útaf HM í fótbolta, en leigusalinn okkar er Potúgalskur og á einmitt knæpu með terasse þar sem öllum fótboltaleikjunum verður sjónvarpað. Ég sem held venjulega með Brasilíu mun nú halda með Angólamönnum í þetta sinn til að styðja við bakið á gömlum vinum. Þar sem þetta er í fyrsta skipti sem þeir eru með á HM verður spennandi að fylgjast með þeim. Jæja ég verð að hætta þessu ég ætla að reyna að ná að skella mér aðeins á hjólabretti áður en við Dóra förum í kveðju-kokkteilboð hjá stelpu sem er að fara í frumskóga Uganda að fylgjast með öpum í eitt ár. SPENNANDI!!!

Pétur með nýja brettið

Fyrsta skiptið í 13 ár

Eitt skemmtilegt ollí, bráðum verða þau mun hærri (vonandi!)

Smá "showoff", "one foot noseblunt slide", framtíðar Tony Hawk múv!

Billy the Kid að "bösta múv" (fyrir þá sem ekki eru komnir með gráa fiðringinn þá þýðir þetta að gera flott trick)

Vinur hans Billy að taka feitt "grind" upp á Mont Royal

Orri, Elli, Dóra, Margrét og Brynjúlfur í gamla bænum (Old Montreal)

Gleðilega Páska,

Pétur

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Gott framtak Pési minn, ég hugsa að ég láti þig bara um að blogga í framtíðinni.

7:44 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Leiðinlegt að heyra að þið séuð ekki á leið til Íslands :( En vonandi látið þið nú sjá ykkur í desember.
Ég verð mjög ósáttur ef þú getur ekki sýnt mér eins og eitt 360° nosegrab backflip með mc twist þegar þú kemur til landsins.
Kveðja,
Hr. Ha

12:36 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Couldn't you?
hydrocodone addiction

5:14 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com