miðvikudagur, mars 01, 2006

Lærdómur, gubb, snjóþrúgur, orgelkeppni, kuldi, Belle & Sebastian o.fl...

Vá, ég held mér hafi bara tekist að þylja upp allt það markverða sem gerst hefur á síðustu dögum í titlinum en það má kannski bæta einhverju við til skýringar.

Eftir að Pétur kom heim úr vel heppnaðri snjóbrettaferð á fimmtudaginn tók við mikil törn við að leggja lokahönd á kaflann sem hann þurfti að skila á mánudaginn. Ég reyndi að aðstoða hann með því að lesa yfir og svoleiðis en var svo óheppin að fá gubbupest á föstudagskvöldið, ojjjbarasta.

Mér leið strax betur á laugardeginum og nennti nú ekki mikið að vera að eyða tíma í að jafna mig þrátt fyrir mikið máttleysi og skellti mér með Martin og Gillian á Ljósahátíð um kvöldið (Nuit Blanche). Fyrst héldum við upp á fjallið Mont Royal sem er hérna í miðri borginni og fórum í smá túr á snjóþrúgum og hlýjuðum okkur með maple-viskíi í chai-tei sem smakkast bara nokkuð vel þótt ótrúlegt megi virðast. Eftir það komum við aðeins við á Copacabana sem er einn uppáhaldsbarinn okkar hérna og fengum okkur smá bjór (það skal tekið fram að ég hélt drykkju í lágmarki bara svona ef einhver var farinn að undrast drykkjuna hjá ælusjúklingnum...). Klukkan 1 um nóttina fórum við svo að sjá snjóplógadans þar sem litlir snjóplógar sem eru notaðir til að hreinsa gangstéttar brunuðu um í takt við teknótónlist. Það var geggjuð stemning í mannskapnum sem hlýjaði sér með því að gera bylgjur (nenni ekki að útskýra, ef þið vitið ekki æ,æ) í kuldanum og merkilega mikil mæting um miðja nótt sem sýnir bara og sannar enn einu sinni hvað Montréal er geggjuð borg. Að snjóplógadansinum loknum fórum við svo inn í eina kirkjuna þar sem fór fram orgelkeppni og sátum þar í smá stund og svo fór ég bara heim að lúlla.

Á sunnudeginum kom svo Elli í heimsókn frá Ottawa og við fórum á tónleika með Belle & Sebastian um kvöldið sem voru vægast sagt frábærir og nú er ég orðin alger aðdáandi, var bara svona hálfaðdáandi fyrir. Og skoski hreimurinn, mmmmm! Pétur var hins vegar heima að læra og var búinn að vera alveg rosalega duglegur en það vildi ekki betur til en svo að þegar hann átti bara smá fínpússun eftir fékk hann gubbuna og það var ekki falleg sjón. En með hörkunni og smá aðstoð frá mér náði hann að koma þessu út á mánudagskvöldið og það var nú mikill léttir.

Í gærkvöldi fór ég ásamt vinnufélögum á snjóbretti í skítakulda og svolítið hörðu færi eftir því. Mér tókst af einstakri lagni að detta næstum kyrrstæð beint á rófubeinið og er enn pínu aum en það er nú ekki alvarlegt.

Á morgun kemur Elli svo aftur og ætlar að vera alla helgina og við ætlum að vera mun betri gestgjafar en síðast og reyna að skemmta honum sem mest við megum. Reyndar er ég að fara á smá skrall með vinnufélögunum á morgun því að það er starfsmannafundur eftir vinnu og kokteill eftir það og svo ætlar liðið að skella sér á ísbar í gaddinum (spáð 20 stiga frosti). Það er s.s. bar sem er utandyra og búinn til úr ísklumpum og það er nú aðeins gert ráð fyrir einum drykk á þeim bar en svo á að kíkja eitthvert annað.

Túrílú!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com