Jæja, þá er ég alveg að verða búin að hrista þetta leiðindakvef af mér, ég er búin að vera meira og minna veik og frá vinnu alla vikuna. Það hittist svo vel á að það er akkúrat ekki búið að vera neitt að gera í vinnunni svo að ég held að Johanne hafi næstum verið fegin að losna við mig. Hún hefur alltaf svo miklar áhyggjur af því að mér leiðist þegar það er lítið að gera, sem er reyndar alveg rétt.
Þar sem ég er búin að liggja að mestu uppi í rúmi og snýta mér hef ég svo sem ekki frá miklu að segja. Pétur er nú í snjóbrettaferð með klúbbnum og ég er að reyna að hafa ofan af fyrir sjálfri mér svo að ég fari ekki að grenja af öfundsýki. Eini ljósi punkturinn er að það er búið að rigna og þau fóru á eitthvað pínulítið svæði sem er reyndar fyrir norðan svo að rigningin hér gæti hafa verið snjór þar eeeeennn ég ætla ekkert að vera að velta því fyrir mér. Já, ég veit að ég er sjálfselsk að óska þess að Pétur sé að renna sér í slabbi og aur en svona er það bara.
Það er ekki einu sinni útlit að við förum á snjóbretti um næstu helgi heldur því að Martin og Gillian eru að reyna að fá okkur með sér á lokahelgi karnivalsins í Québec-borg sem er víst algert must að upplifa. Helgina eftir það förum við svo í snjóbrettaferð með vinnufélögum mínum til Mont Tremblant sem er eitt stærsta og flottasta svæðið hér í Québec. Það er sem sagt nóg spennandi að gerast fram undan.
Eitt af því skemmtilega sem er framundan er að sjálfsögðu afmælið mitt (mundu það ekki örugglega allir?) og mamma er nú þegar búin að senda mér pakka sem ég stóðst ekki mátið að opna enda vissi ég hvað innihaldið var: þessi fína lopapeysa sem hún prjónaði handa mér og er ekkert smá flott. Ég var einmitt að reyna að taka mynd af sjálfri mér í lopapeysunni til að setja hérna inn en ég kann ekki að láta myndavélina okkar taka mynd sjálfvirkt svo að ég verð að bíða eftir Pétri og skelli kannski einni inn á eftir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home