Ottawa
Ég var eitthvað slöpp í síðustu viku og þjáðist af alls konar furðulegum kvillum en nú líður mér betur (ef einhver hefur áhuga á að vita það). Þar sem við Pétur sáum ekki fram á gott snjóbrettaveður um helgina vegna hita ákváðum að skella okkur í helgarferð til Ottawa að heimsækja Önnu Lilju og Ella og leigðum bíl sem er eiginlega ódýrara en að taka rútu. Það var ekkert smá gott að vera á bíl og geta verið frjáls ferða sinna, svo kostar það svo lítið, ca. 7.000 kall fyrir alla helgina með tryggingu og sköttum. Svo kostar náttúrulega ekki nema rúmlega 2.000 kall að fylla bílinn af bensíni en það finnst Kanadabúunum allt of mikið...
Við lögðum af stað á laugardagsmorguninn og vorum komin til Ottawa um hádegið. Um eftirmiðdaginn fórum við á þjóðminjasafn Kanada og sáum meðal annars íslenskan skautbúning og fullt af fallegum indíánamunum. Um kvöldið fórum við svo út að borða og enduðum svo heima hjá einni íslenskri stelpu sem er nýflutt til borgarinnar og spjölluðum fram á nótt um virkjana- og álversframkvæmdir á Íslandi, he, he... Á sunnudeginum var svo kominn skítakuldi en við Íslendingarnir ætluðum nú ekki að láta það á okkur fá og löbbuðum í háskólann sem AL og E eru í. Svo fórum við aftur út og flúðum eiginlega beint inn á kaffihús því að það var svo kalt að það var vont.
Það er enn frekar kalt en svo á að fara að rigna á morgun og það pirrar mig náttúrulega óendanlega mikið en það er spáð snjókomu fyrir helgi og það er sko eins gott að það klikki ekki, annars! Ég hef bara alls ekkert fleira að segja í bili, úff hvað þetta er boring blogg.
P.s. Setti linkana í stafrófsröð, hvílíkur léttir!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home