Gleðilegt nýtt ár (betra er seint en aldrei)
Smá færsla bara svona til að láta ykkur vita að við erum á lífi. Hver hefur svo sem frá einhverju spennandi að segja í byrjun janúar??? Það varð kátt í kotinu þegar Pétur kom til mín eftir miðnætti á föstudaginn. Svo fórum við í sushi-matarboð til Tak sem er einmitt frá Japan á laugardaginn.
Í gær eftir vinnu fórum við í fyrstu snjóbrettaferð vetrarins ásamt vinnufélögum mínum. Færið var bara fínt og það var alveg æðislegt að komast aðeins á bretti. Í dag er svo búið að hlýna og rigna pínu og á að haldast þannig fram að helgi svo að við erum að spá í að sleppa snjóbrettaferð laugardagsins og kíkja kannski frekar í heimsókn til Önnu Lilju og Ella í Ottawa.
Annars get ég sagt frá því að ég var víst sammferða frægum mönnum í vélinni til Boston. Ég var nefnilega sett á Business Class og fannst gaurinn við hliðina á mér og vinur hans hinum megin við ganginn eitthvað töffaralegir en spáði ekki meira í það. Svo var ég að horfa á sjónvarpsþátt um fræga fólkið daginn eftir og sé þau vininn sem heitir víst Eli Roth og er leikstjóri og Tarantino-vinur með meiru. Hann leikstýrði einmitt mynd sem heitir Hostel og er með einum íslenskum leikara sem ég þekki reyndar ekkert. Pétur skellti sér á myndina sem er sú mest aðsótta hérna vestan hafs um þessar mundir og hún er víst alger hryllingur eins og ætlunin var, sem er einmitt ástæðan fyrir því að ég neitaði að fara... Svo kom Pétur með nýjasta Séð og heyrt og þá kom í ljós að gaurinn sem sat við hliðina á mér er víst aðalgaurinn í Wu Tang Clan. Vá, ég er barasta með stjörnur í augunum...
Bíb D

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home