Vá, enn einn fimmtudagurinn að verða búinn og svo er bara einn dagur eftir í vinnunni, vei! Ég hugsa meira að segja að ég hætti snemma á morgun vegna þreytu og svo er ég ekkert byrjuð að pakka og undirbúa Íslandsferðina. Anna Lilja og Elli komu hingað á mánudagskvöldið og það er búið að vera alveg frábært að hafa þau hérna hjá okkur. Pétur hefur teymt þau um bæinn á daginn og ég hef verið alveg að krepera í vinnunni á meðan og svo reynum við að gera eitthvað skemmtilegt á kvöldin.
Á þriðjudaginn fórum við út að borða á La Sala Rosa sem er spænskur tapas-staður og einn uppáhaldsveitingastaðurinn minn í borginni með svona ekta spænsku andrúmslofti og svo bjóða þeir upp á geggjaða mojito og sangriu. Eftir matinn fórum við svo á tónleika á efri hæðinni með hljómsveitum sem við höfum aldrei heyrt minnst á en vorum bara nokkuð sátt við, man ekki hvað upphitunarbandið heitir en það var ekki síðra en aðalbandið sem heitir The Earlies og spilar einhvers konar electro-pop.
Í gær fórum við svo aðeins í bæinn og svo fóru strákarnir á King Kong í bíó en við Anna Lilja fórum á Pride and prejudice, sem mér fannst alveg "yndisleg" eins og ég sagði við strákana og þeir hrylltu sig við... Ég er alveg viss um að hún var betri en KK en strákunum fannst hún bara sæmileg og ekkert meira en það (er ekki yndislegt betra en sæmilegt?).
Í kvöld ætlum við svo að búa til fondú og hafa það næs heima, mér veitir ekki af því að ég er ansi þreytt eftir vikuna. Á morgun ætla svo vinir Önnu Lilju og Ella frá Ottawa að sækja þau og keyra áfram til Boston þar sem þau munu dvelja hjá frændfólki Ella.
Ætli þetta sé ekki síðasta bloggið frá Montréal í bili, hlakka til að sjá ykkur!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home