Föstudagur vei!
Jæja, þá er Canada orðið conservative og ekki orð um það meir...
Við fórum á snjóbretti ásamt vinnufélögum mínum eftir vinnu í gær og kvefið sem ég var búin að ná mér í jókst um helming þannig að nú tala ég eins og ekta nefmæltur ameríkani og heyri bara með öðru eyranu. Vona bara að ég verði hressari á morgun því að þá er stefnan tekin á Jay Peak í Vermont, sem er eitt uppáhaldssvæðið okkar hérna, ásamt snjóbrettaklúbbnum. Það verður lagt af stað klukkan 7 þannig að það er eins gott að taka því rólega í kvöld og halda bara áfram að horfa á 24, ekki leiðinlegt.
Við erum reyndar boðin í partý til Pierre í tilefni af Korean New Year en hann er hálfkóreanskur en ég bara nenni ómögulega. Þetta var voða fínt og dannað í fyrra en ég verð að segja að ég varð fyrir smá vonbrigðum með kóreanskan mat. Ég er svo hrifin af kínverskum, tælenskum og víetnömskum en allavega var maturinn sem Pierre bauð upp á ekkert spes en kannski var það bara eldamennskan hans eða matur frá héraðinu sem pabbi hans er frá eða eitthvað...
Þá held ég bara að þetta sé komið í bili, sem sagt ekkert að frétta.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home