mánudagur, janúar 23, 2006

Góð helgi og kosningar

Þetta var nú aldeilis góð helgi. Ég kíkti á smá skrall með vinnufélögunum á fimmtudaginn en það er mjög vinsæll djammdagur hjá þeim hópi. Ég var samt bara þæg og skemmti mér passlega mikið. Var samt svaka þreytt í vinnunni á föstudaginn og rétt hafði það upp á Thomson House eftir vinnu en þangað hef ég ekki farið allt of lengi. Þar var Pétur ásamt nokkrum mannfræðingum og við fengum okkur gómsæta “Famous Friday Pizza” með frumlegu áleggi, alger snilld. Rich vinur okkar sem rekur barinn í kjallaranum er búinn að sakna okkar mikið og gefur okkur alltaf 1-2 könnur af bjór. Ég er eiginlega með sammara yfir þessu og er alveg harðákveðin í að mæta betur næstu föstudaga. Ég fór svo bara snemma heim enda þreytt eftir kvöldið áður en Pétur fór aftur á Tommann og sat að sumbli fram yfir miðnætti ásamt Scott, Cameron, namibísku kærustunni hans og Tak.

Á laugardaginn tókst mér að gera mjög góð kaup á útsölum, það liggur við að búðirnar gefi flíkurnar þetta er svo ódýrt en ég keypti mér nú bara hnébuxur og peysu á spottprís. Svo var ég rosadugleg í ræktinni, var í einhverju svakastuði og púlaði eins og vitleysingur, ekki veitir af að reyna að massa sig svolítið. Um kvöldið kom Scott svo til okkar og við fórum með honum í snjóbrettaklúbbspartý en við vorum eins og gamalmenni innan um gelgjurnar sem var bara gaman. Svo var haldið í mannfræðipartý til Rémys sem heldur hin viltustu samkvæmi og þetta var engin undantekning og ekki farið heim fyrr en í morgunsárið. Ég hefði nú alveg verið til í að fara um það bil tveimur tímum fyrr en Pétur var í þvílíku megastuði að ég átti erfitt með að draga hann heim. Endaði með að sofna í einhverjum sófa og var svolítið úrill þegar við loksins yfirgáfum hófið, vona að enginn hafi tekið sérstaklega eftir því...

Þetta gerði náttúrulega það að verkum að gærdagurinn var hálfónýtur og ég er enn hálfþreytt enda vorum við að horfa á seríu fjögur af 24 þar til seint í gærkvöldi (á mælikvarða kvöldsvæfrar útivinnandi konu). Mikið asskoti er hann Jack Bauer mikil hetja. Ég er eiginlega mjög fegin að hafa aldrei séð Kiefer karlinn blindfullan niðri í bæ í Reykjavík, það myndi alveg rústa ímyndinni.

Ég var annars að fatta að það eru þingkosningar hér í Kanada í dag og stjórnmálafræðingurinn ég hef ekki svo mikið sem minnst á þessar kosningar á þessari síðu. Það stafar nú fyrst og fremst af því að ég hef mjög lítið fylgst með kosningabaráttunni og veit allt of lítið um kanadísk stjórnmál almennt eins og stór hluti af kanadísku þjóðinni en hér er aðeins um 60% kosningaþátttaka. Baráttan stendur sem sagt aðallega milli hins ríkjandi frjálslynda flokks (Liberals) og íhaldsflokksins (Conservatives) sem er talinn mjög líklegur til sigurs í þetta skipti. Þeir frjálslyndu hafa setið í ríkisstjórn í 13 ár og fólk er orðið leitt á þeim (ætli það gerist einhvern tíma á Íslandi???) og svo hafa þeir líka lent í hneykslismálum tengdum spillingu. Svo er Bloc Québecois sem berst fyrir aðskilnaði og býður aðeins fram hér í Québec og hefur nokkuð mikið fylgi miðað við það og FDP sem er lítill vinstri flokkur sem margir kalla kommúnistana en er nú ekki svo ýkja langt til vinstri á evrópskan mælikvarða. Þetta eru allavega svona helstu valkostirnir en margir líta svo á að þeir hafi bara val milli Liberals og Conservative sem eru visælastir í Alberta olíulindanna.

Það sem mér finnst eiginlega merkilegast við þessar kosningar eru auglýsingarnar en þær eru svo lágkúrulegar og það er eins og þetta snúist allt um ímynd og ekkert um málefnin. Þetta er mjög svo neikvæð kosningabarátta sem snýst nær alfarið um að sverta ímynd andstæðingsins en ekki bæta eigin. Conservatives eru með myndir af Paul Martin forsætisráðherra sem hafa verið litaðar rauðar (blóð?) og talið upp það sem hann hefur gert af sér. Liberals þylja upp heimskulega hluti sem Stephen Harper, leiðtogi íhaldsmanna, hefur látið út úr sér í gegnum tíðina. Kosningabaráttan á Íslandi er bara hátíð miðað við þetta og samt finnst manni að hún sé stundum á voða lágu plani eitthvað.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com