þriðjudagur, febrúar 21, 2006

Ein mynd í viðbót og fleiri á leiðinni

Jæja, nú er ég komin úr frábærri helgarferð með vinnufélögunum til Mt. Tremblant þar sem var skíðað í skítakulda, borðaður góður matur, drukkið slatti af áfengi, dansað og sungið og farið í skandinavískt spa... og nú er Pétur í spring break ferð með snjóbrettaklúbbnum á Mt. Sainte-Anne og Le Massif sem eru víst frábær svæði hér í Québec en ég hef aldrei komið til. Þetta var allt frekar illa skipulagt hjá einum einstaklingi sem þarf að skila inn 20 blaðsíðum í ritgerðinni sinni í næstu viku og hætti við að fara með í helgina til að læra, ég nefni engin nöfn. Svo kemur bara í ljós eftir allt saman að mér finnst bara gaman að búa ein í smá tíma þó að morgundagurinn verði kannski svolítið einmanalegur ef einhver veit hvað ég meina. Gillian ætlar þó að sjá aumur á mér og fara með mér út að borða og reyna kannski að hóa í einhverja fleiri. Hún og fleiri eru svo að fara á tónleika eftir klukkan 9 sem ég nenni ekki á enda ágætt að fara snemma að sofa í miðri vinnuviku.

Hér kemur svo ein mynd frá matarboði sem við héldum fyrir Guðrúnu og Mathieu á fimmudaginn. Við ákváðum að hafa vaðið fyrir neðan okkur og elda öndina sem við vorum áður búin að elda á Valentínusardaginn svo að færi ekki eins og með karríkjúklinginn óæta og hún reyndist mjög góð og franska súkkulaðikakan líka (Hulda, takk fyrir uppskriftina).


P.s. Ég var að hlusta á Júróvisjónlagið með Silvíu Nótt og fannst það bara mjög grípandi og skemmtilegt, það verður gaman að sjá hvernig fer...

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Sæl og blessuð afmælisbarn, innilega til hamingju með afmælið. Ef ég væri í sama landi og þú þyrftir þú sko ekki að vera ein á afmælisdaginn....nei ó nei, en himinn og haf skilja okkur að ...trlalalalal....ég er með óráði af morgunsyfjunni góðu. En i tilefni dagsins ætla ég að hlusta á catpower því þér finnst þau svo skemmtileg (hef aldrei heyrt það)
Bestu kveðjur, knús og kossar
Hulda

3:37 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk Hulda og njóttu Catpower, I love it og svo finnst mér nafnið alveg einstaklega skemmtilegt og eiga vel við mig :)

9:04 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com