Skemmtilegt afmæli
Ég á rosa góða vini, bæði á Íslandi og erlendis. Vinir mínir hérna í Montreal pössuðu vel upp á mig í gærkvöldi og sáu til þess að ég skemmti mér vel á afmælisdaginn. Við fórum fimm stelpur (Dóra, Gillian, Julia, Sybil og Annie) á veitingastað sem heitir l´Académie og seinna slóst Martin í hópinn. Þetta er risastór og flottur staður þar sem má koma með eigið vín og maturinn var gómsætur og ódýr. Ég hugsa að ég taki pæjurnar með þangað þegar þær koma í ágúst! Ég fékk mér snigla í forrétt og "moules et frites" (engar áhyggjur Hulda, það er hægt að fá margt annað en krækling þarna) í aðalrétt og svo pöntuðu krakkarnir handa mér köku í eftirrétt og sungu fyrir mig! Þau þurftu svo að fara á tónleika klukkan 10 og Sybil, sem býr rétt hjá okkur labbaði með mér heim og við spjölluðum svolítið og borðuðum íslenskar Djúpur sem er í miklu uppáhaldi hjá henni og fleirum. Sem sagt gott afmæli þrátt fyrir eiginstráksleysi!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home