Vor
Nú sit ég og sötra rauðvín einsömul á laugardagskvöldi og hlusta á Wolf Parade sem er hljómsveit vikunnar. Við sáum þá hita upp fyrir Arcade Fire fyrir ári síðan en þá þekkti ég þá ekkert og ég verð að segja að ekkert okkar var sérlega "impressed" (með WP sko, AF voru alveg geggjaðir) en þeir eru greinilega betri á bandi en live eða kannski áttu þeir bara slæmt kvöld.
Pétur er í Ottawa hjá Ella og þeir fóru á snjóbretti í dag í rigningunni því að nú er vorið komið. En á morgun ætla þeir til Mt. Tremblant sem er norðar og væntanlega með meiri snjó og betra færi. Í gær var 19 stiga hiti og sól og fólk spókaði sig um á sandölum og stuttermabolum, geggjað! Ég elska Montréal.
Það er helst í fréttum að við erum að leita okkur að íbúð og erum búin að finna eina sem okkur líst á en hún er aðeins dýrari og stærri en við ætluðum okkur. Hún er reyndar ekki mikið dýrari en sú sem við búum í en mikið stærri, með smá garði eða terrasse og þvottavél og þurrkara sem mér finnst mikill plús. Ég ætla að skoða aðeins meira á morgun og svo ætlum við að ákveða hvort við tökum hana eða ekki. Það yrði allavega nóg pláss fyrir gesti (smá hint...).
Jæja, er að fara að hitta Martin og Gillian og fleiri á bar, það er surprise fyrir einhvern gaur sem ég þekki ekki neitt, er s.s. boðflenna...
Góða helgi

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home