Frábær helgi
Við fórum til Vermont um helgina með snjóbrettaklúbbnum og Ella og þrátt fyrir að mestallur snjórinn virðist vera farinn hér í Québec reyndist bara ágætis færi í Vermont og snjóaði eiginlega alla helgina. Á laugardaginn fórum við til Stowe, þar var ferskur snjór en hálkublettir á köflum. Um kvöldið gistum við svo í Burlington sem er stærsta borgin í þessu strjálbýlasta ríki USA. Borgin kom skemmtilega á óvart en þetta er háskólaborg með sætum miðbæ og fínu næturlífi. Við vorum nú samt frekar þreytt eftir daginn og fórum ekkert sérstaklega seint að sofa eftir að hafa farið út að borða með ungmennunum en við vorum aldursforsetar hópsins ásamt einum öðrum gaur. Sumir krakkarnir voru bara 18-19 ára og mér fannst ég alveg eins geta verið mamma þeirra, alger krútt!

Dóra snjóbrettagella í Sugarbush

Pétur snjóbrettatöffari

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home