Jæja, rúm vika frá síðasta bloggi, ég er greinilega ekki að standa mig! Hér kemur eitt stutt:
Elli kom á fimmtudaginn og var hjá okkur fram á mánudagsmorgun og nú gátum við sinnt honum betur en seinast þegar ælupest og lærdómur settu strik í reikninginn. Á fimmtudeginum fór ég reyndar út með vinnufélögunum og svei mér þá það er ekki hægt að fara út með þessu liði án þess að verða ögn ölvaður. Ég held ég hafi keypt mér einn drykk allt kvöldið og reyndi hvað ég gat að þverneita að taka skot og annan viðbjóð en hvað getur maður gert þegar fólk er þegar búið að kaupa drykkinn handa manni? Ég meina, ég vil ekki vera neinn dóni... Svo borgaði ég aldrei til baka af því að ég var rétt svo búin með einn drykk þegar einhver kom með annan, ussss! Pétur og Elli fundu mig svo svolítið skakka úti á götu og drógu mig aftur inn á bar og gáfu mér vatn að drekka og svo fórum við á líbanskan veitingastað sem ég held að hafi bjargað lífi mínu daginn eftir enda mætt í vinnuna klukkan 8!
Á föstudaginn fórum við svo á Thomson House og kíktum svo aðeins á Biftek sem er frekar sjabbí bar sem við förum stundum á en Dóra fór svo bara snemma heim enda ansi þreytt eftir skrall gærdagsins. Á laugardaginn fórum við á snjóbretti og vorum svo heppin að það snjóaði allan daginn og færið var bara nokkuð gott eftir því. Um kvöldið fórum við svo á indverskan veitingastað með Ari og Sybil og enduðum svo á tónleikum með instrumental bandi héðan frá Montréal, sem voru bara nokkuð góðir. Strákarnir fóru svo á smá pöbbarölt en við Sybil fórum bara heim að lúlla. Svo var lífinu bara tekið rólega á sunnudeginum, alveg eins og sunnudagar eiga að vera.
Nú er farið að hlýna aðeins og það var hellirigning í gær en samt er sumarið langt undan. Það er samt svo fyndið að sumarvörurnar komu í búðir fyrir mánuði síðan og ekkert hægt að finna annað en sumarpils og hlýraboli í búðunum. Montréal-búar eru yfirleitt komnir með svo mikið ógeð eftir kaldan vetur að þeir geta ekki beðið eftir sumrinu og sumar pæjurnar láta sig hafa það að ganga um berleggjaðar þó að enn sé skítakuldi úti í apríl. Ég verð að viðurkenna að um leið og snjóbrettatímabilið líður undir lok sem gerist örugglega bráðlega get ég ekki beðið eftir sumrinu, sérstaklega eftir að hafa upplifað eitt geggjað sumar hér. Elli var nú samt að segja að hann væri alveg til í að koma í heimsókn seinna í snjóbrettaferð en ég hef alltaf sagt fólki að það eigi að koma hingað um sumar og fara til Alpanna á veturna. Kannski er það bara bull í mér en ég veit að vinkonur mínar sem eiga mjög svo áhugasama skíða-menn sem eru æstir í að koma hingað um vetur eru mjög þakklátar fyrir þessar yfirlýsingar.
P.s. Ef þið eruð ekki búin að krækja ykkur í nýjasta diskinn með Belle & Sebastian þá mæli ég með því að þið gerið það strax!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home