miðvikudagur, maí 03, 2006

Paradís á Plateau

Jæja, þá erum við flutt í nýju íbúðina og erum satt best að segja alveg í skýjunum yfir því og mjög ánægð með þetta allt saman, íbúðina og hverfið. Þegar ég kem heim úr vinnunni þarf ég að kalla á Pétur og leita að honum til að finna hann eða þannig... Það er allavega miklu meira pláss heldur en í hinni holunni. Hverfið sem við búum í kallast Le Plateau og er "101" Montréal og mikið líf á götunum og alls konar veitingastaðir, barir og búðir. Við erum búin að uppgötva hræbillegan portúgalskan skyndibitastað og bakarí (Ramados) þar sem maður getur fengið vel útilátinn, gómsætan og djúsí kjúlla, franskar, brauð og portúgalskt bakkelsi fyrir 5 dollara (ca. 300 kall). Kjúllinn er grillaður í massavís af sveittum og loðnum Portúgölum sem hafa snyrtimennskuna ekki í fyrirrúmi og því er þessi matur ekki fyrir pjattaða en bragðið klikkar ekki!

Flutningarnir gengu mjög vel fyrir sig og við fengum mikið hrós fyrir að vera vel skipulögð og undirbúin, þó að allt hefði verið á síðustu stundu í pökkuninni. Við fengum næstum því of mikla hjálp og þetta gekk alveg svakalega hratt og við eyddum mun meiri tíma í að jafna okkur eftir "erfiðið" en að flytja. Við pöntuðum pizzur og drukkum bjór á gangstéttinni fyrir utan nýju í búðina í góða veðrinu og höfðum það huggulegt. Nýi landlordinn kom með blóm handa okkur og nágrannarnir á efri hæðinni sögðu okkur að þau væru bestu landlordar sem þeir hefðu haft, ekki slæmt. Um kvöldið fórum við Pétur svo út að borða í tilefni af afmæli Ben´s sem er maðurinn hennar Casey (veit ekki hvort ég hef minnst á þau fyrr) og eftir það í partý til Rémy. Ég drakk ekki mikið og var ansi þreytt eftir vikuna og langaði að nota daginn eftir í að taka upp úr kössum en samt náðum við að vera síðustu gestirnir til að yfirgefa partýið klukkan 3 um nóttina en það var óvenjusnemmt fyrir Rémy-partý.

Það kom reyndar smá babb í bátinn í gær, við komumst að því að við höfðum ekki borgað tvöfalda leigu fyrsta mánuðinn á hinum staðnum eins og við héldum og því þurfum við að borga tvöfalda leigu fyrir maí. Úps, við erum stundum pínu kærulaus í peningamálunum... En ég er svo ánægð með íbúðina að ég nenni barasta ekki að stressa mig yfir þessu, þetta reddast allt saman á endanum, bara eins gott að við erum ekki að fara til Íslands eða Kúbu! Kannski þurfum við eitthvað að bíða með að kaupa fleiri húsgögn en við ætlum nú samt í IKEA á laugardaginn og kaupa ýmislegt sem okkur vantar eins og gardínur og hillur í einn fataskápinni og svoleiðis. Við fáum líka bílinn hjá Lucy vinkonu minni lánaðan þannig að það er um að gera að nota tækifærið.

Ég fékk bréf í síðustu viku um að ég hefði komist inn í Université de Montréal í Études Internationales (International Studies) og ég verð að viðurkenna að ég varð ansi hissa, ég var eiginlega alveg búin að afskrifa þetta. Þetta ruglaði mig m.a.s. svolítið í ríminu en ég er enn ákveðin í að fara í McGill og bara ef þið skilduð ekki vita það þá er það mastersnám í Urban Planning. Já, ég er að fara í mastersnám í fagi sem ég veit ekkert um... Eins gott að fara að lesa og undirbúa sig!

Aðrar góðar fréttir, ég á von á fullt af heimsóknum í ágúst: fyrst mamma og Haraldur, svo Heiður og svo pæjurnar Hulda, Krissa og Gunnþóra! Veiiiii, get ekki hætt að hugsa um það, er að deyja úr tilhlökkun strax!

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hmmm, hitt kommentakerfið virðist hafa dottið út. Kannski blogger hafi hent því út. Allavega þurfum við ekki að spá meira í það. Endilega kommentið. Takk.

4:26 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

tralallalalaal.....við erum búnar að kaupa miða....Montreal here we come :-)

4:36 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með nýju íbúðina Dóra og Pétur.

Því miður verð ég ekki ein af gestunum þetta árið - verð líklega aðeins of upptekin við að krúsa H&M í Stokkhólmi til að hafa tíma í borgir eins og Montréal. En heppin ég að þið ætlið ekki að flytja heim næstu 20 árin - þá hef ég nógan tíma til að koma í heimsókna ;)

4:49 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Innrásin mikla hefst 25.ágúst! Spurning hvort henni ljúki nokkurn tímann...... Pétur, búðu þig undir kvennaveldi DAUÐANS...!!!!
ÍÍííííaaahahhahahahah

7:02 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

úíajejejejóveijibbíjei!!! Þetta er nýjasta tilhlökkunarhljóðið mitt og það heyrist oft þessa dagana! Vonandi kemur ágúst og The Invasion of the Icelanders bara sem fyrst! Hef reyndar margt skemmtilegt að gera þangað til en þetta verður toppurinn! Jibbí!

8:57 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ertu að gerast kollegi minn Dóra??

Urban Planning klikkar ekki. Skemmtilegt fag skal ég segja þér.

Kv.

5:44 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com