þriðjudagur, maí 09, 2006

IKEA og fleira

Við erum með bílinn hennar Lucyar í láni og fórum í IKEA á laugardaginn. Við ætluðum fyrst og fremst að reyna að finna svefnsófa og svo alls konar aukadót. Okkur fannst allir svefnsófarnir ljótir nema þeir allra dýrustu og enduðum á að kaupa ekki svo mikið. Við komum ekki í búðina fyrr en rúmlega 3 því að um morguninn biðum við eftir mönnum frá Bell símafyrirtækinu til að setja inn símatengingar en að sjálfsögðu komu þeir ekki. Það er svo léleg þjónusta hjá þessu fyrirtæki að það er ekki eðlilegt og ég hef ákveðið að taka bara þann pól í hæðina að hlæja bara að vitleysunni því að annars myndi ég verða sturluð. Þeir geta t.d. ekki gefið nákvæmara stefnumót en milli klukkan 8 og 13 sem þýddi að við þurftum að eyða laugardagsmorgninum í að bíða eftir þeim og svo hringdu þeir klukkan þrjú og kvörtuðu yfir því að við værum ekki heima.

Allavega þá átti IKEA að loka klukkan 5 svo að við tókum tveggja tíma maraþon inni í búðinni og fórum svo út í bíl en æ, æ, Dóra hafði gleymt ljósunum á og Bob (berist fram Búúúb með mjög breskum hreim) var rafmagnslaus. Við byrjuðum á að ýta bílnum út um allt planið til að koma honum í gang en gáfumst upp á því og fengum start frá leigubílstjóra. En allt kom fyrir ekki (samt borguðum við 25 dollara fyrir), Bob vaknaði ekki svo að við héldum að það væri eitthvað annað að og létum hann sofa á bílastæðinu og tókum rándýran leigubíl heim. Daginn eftir þurftum við því að fara aftur í IKEA og reyna að starta bílnum. Við ákváðum í bríaríi að fá annan leigubílsstjóra til að starta og viti menn, Bob vaknaði og ég hoppaði um og öskraði af gleði á bílastæðinu. Hinn gaurinn hafði bara augljóslega ekki hugmynd um hvað hann var að gera. Skemmtileg saga eða þannig.

En nú erum við búin að finna svefnsófa í búð hérna niðri í bæ sem við ætlum að kaupa og svo ætlum við aftur í IKEA seinna í vikunni og kaupa dót sem passar við hann. Svo erum við búin að bjóða alveg fullt af fólki, bæði verkfræðingum og mannfræðingum, í innflutningspartý á laugardaginn. Það verður nú gaman að sjá hvernig þessir tveir hópar passa saman, ég veit svei mér þá ekki hvorir eru með meiri fordóma gagnvart hinum þó að mannfræðingar séu náttúrulega opinberlega mjög fordómalausir... Set inn myndir þegar allt er orðið fínt og kannski einhverjar frá partýinu.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hljómar voðalega spennó...eins gott að það verði orðið fínt þegar ég kem í heimsókn..eins ef þig vantar einhverja faglega ráðgjöf endilega vertu í sambadi..hihihihi..en hvar get ég séð myndir af herlegheitunum??
knús til ykkar beggja
Krissa

3:35 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

..eða sambandi..ef þig langar ekki í SAMBAD...
ég er svo mikill lúði...

3:36 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Krissa, set inn myndir á eftir en þær eru þó aðallega frá partýinu og það skal taka fram að við eigum eftir að leggja lokahönd á innanhússkreytingar... Vona að það falli í kramið hjá arkitektinum. Læt þig vita ef ég þarf ráðgjöf! Kannski bíðum við bara með að kaupa restina af húsgögnunum þar til þú ert komin...

9:05 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com