060606
Ég varð nú bara að blogga aðeins í tilefni dagsins. Ætlaði reyndar að vera löngu búin að setja inn fleiri myndir frá Toronto/Niagara-ferð og fleiru en er búin að vera eitthvað löt.
Við buðum Guðrúnu og Mathieu í fyrsta matarboðið í nýju íbúðinni á föstudaginn. Við ákváðum að grilla og vorum náttúrulega á síðustu stundu með allt og svo kom í ljós að það var ekkert gas í kútnum sem Pétur keypti þannig að við þurftum að kaupa kol og enduðum því með að borða seint og um síðir svo að flestir voru komnir vel í glas loksins þegar við borðuðum en það var nú bara gaman.
Sumarið er loksins komið og ca. 25 stiga hiti og sól flesta daga nema náttúrulega um helgar, þá rignir og kólnar aðeins, týpískt! Það er eins gott að það verði gott veður um næstu helgi því að á laugardaginn er ég að vara í rafting ásamt nokkrum vinnufélögum en Pétur vildi ekki missa af HM og kemur því ekki með. Hann mun líka missa af fullt af leikjum seinna þar sem að hann er að fara í veiði til Gaspésie sem er í austurhluta Québec ásamt ný-sjálenska Íranum Michael í 10 daga í lok mánaðarins. Pétur er ekki sá eini sem má ekki missa af HM því að Lucy hin enska hætti við að fara í rafting þegar hún fattaði að England er að spila fyrsta leikinn sinn þennan dag, mér finnst það nú ansi mikil fórn fyrir einn skitinn fótboltaleik en ég hef líka aldrei skilið þetta fótboltafár.
Nú er heilsuátak á heimilinu og ég er búin að fara nokkrum sinnum út að skokka eftir vinnu og ætla að reyna að halda því áfram út sumarið og Pétur er duglegur að fara í fótbolta og softball og fleira. Það er alveg svolítið hvetjandi að þurfa að vera léttklæddur í góða veðrinu, þá vill maður ekki að spikið flæði út um allar glufur. Ég tala nú ekki um ef maður þarf að vera í bikini fyrir framan vinnufélagana í raftinginu og svona, úff...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home