laugardagur, maí 27, 2006

Toronto-ferð

Ég tók mér frí í vinnuni á fimmtudag og föstudag í síðustu viku og svo var frídagur á mánudaginn svo að við Pétur ákváðum að skella okkur í fimm daga ferð til Toronto að heimsækja Heather vestur-íslensku frænkuna hans Péturs, Derek manninn hennar og tíkina Keiru. Við leigðum okkur bíl og þar sem við Pétur erum ekki neinir bílaspekúlantar og ekki mjög hrifin af risabílunum hérna í ameríkunni ákváðum við að skella okkur á eitt stykki Yaris þó að hann væri á sama verði og einhver amerísk hlussa. Ég held að gaurarnir á bílaleigunni hafi aldrei fengið eins undarlega bón enda ekki nema von því að við dauðsáum eftir að taka Yarisinn sem ætlaði alveg að springa á hraðbrautunum og er kannski ekki öruggast bílinn ef maður myndi lenda á einum kagganum. En við vitum bara betur næst...

Það var mikið búið að vara okkur við að Toronto væri nú lítið spennandi borg enda finnst Québec-búum Ontario-fylki eins og það leggur sig ekki þess vert að sækja heim, fyrir utan hvað fólki þar er glatað eða þannig... Einu sinni heyrði ég þessu ástar-haturs sambandi milli fylkjanna lýst eins og sambandi tveggja bræðra þar sem annar væri framagjarn og pottþéttur lögfræðingur (Ontario) og hinn drykkfelldur kvennabósi (Québec). Toronto heillaði mig svo sem ekkert sérstaklega en ég náði heldur ekki að skoða hana neitt að ráði á þessum þremur dögum sem við vorum þar því að Toronto er ansi stór, fjórða stærsta borg Norður-Ameríku. Það var líka að hluta til af því að mikið af tímanum fór í að sinna tíkinni Keiru sem skipar stóran sess í lífi þeirra Heather og Derek.

Á sunnudeginum ákváðum við svo að skella okkur til Niagara og höfðum hugsað okkur að tjalda svo í þorpi þar rétt hjá í vínræktarhéraði sem á að vera mjög skemmtilegt. Það var hins vegar rigning og leiðindaveður þegar við komum til Niagara svo að við rétt skruppum út úr bílnum, smelltum af nokkrum myndum og brunuðum svo beinustu leið til baka til Montréal. Ég verð að segja að ég varð fyrir smá vonbrigðum með Niagara, fossarnir voru ekki eins háir og ég hélt og svo er algert disneyland í kringum þá og mjög mikill túrismi sem var reyndar búið að vara mig við.

Pétur og Keira urðu strax mjög náin enda hefur gaurinn alveg magnað aðdráttarafl á hvers kyns kvikindi og ungviði...

Dóra og Keira voru líka ágætis vinkonur þrátt fyrir að þær kepptust um hylli sama mannsins...

Bjór og Pétur

Pétur ákvað að smakka aðeins á tómatsósunni líka

Dóra getur verið með sólgleraugu eins og annað fólk

Pétur er orðinn tvöfaldur stóri frændi, hann eignaðist lítinn frænda þann 21. maí sem hefur hlotið nafnið Rúnar. Mjöll, Ragnar og Skúli, innilega til hamingju með guttann!

Aðrar góðar fréttir: Pétur var að fá styrk frá Landsbankanum sem mun heldur betur koma sér vel þegar aðal fyrirvinna heimilisins sest aftur á skólabekk.

Að lokum langar mig til að mæla með nýjasta disknum með kanadísku söngkonunni Feist, ekki síst fyrir “easy-listening” fólk. Við höfum séð hana á tónleikum með Broken Social Scenes en aldrei eina og sér, vona að það gefist tækifæri til þess einn daginn. Annar diskur sem ég hef verið að hlusta á heitir Monsieur Gainsbourg revisited og er með mörgum frábærum tónlistarmönnum sem flytja enskar útgáfur af Gainsbourg-lögum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com