mánudagur, júní 12, 2006

HM, Rafting og Radiohead

Flippuð gella, Laura, Ginnie og Jacques








Ég fór í rafting ásamt nokkrum vinnufélögum á laugardaginn og það þurfti auðvitað að vera versti dagur sumarsins, 13 stiga hiti og rigning a la Islande. Það var þó bót í máli að áin var 25 gráðu heit og við vorum í blautbúningum en samt var ansi svalt. Allir náðu að detta út í einu sinni og ég fór svo langt af leið að kajak-maður þurfti að koma og bjarga mér og það var náttúrulega alveg geggjað :-)

Pétur eyddi helginni í að horfa á HM og ég horfði með honum á Angóla-Portúgal á sunnudaginn. Ég held nú að Pétur verði bara að vera sáttur með sína menn að hafa tapað 1-0 fyrir Portúgölum þó að hann væri svolítið svekktur yfir því að þeir hefðu ekki náð að jafna. Við búum í mjög portúgölsku hverfi en ákváðum að labba á þýskan stað til að horfa á leikinn því að Pétur þorði ekki að styðja Angóla á börunum í kringum okkur. Á leiðinni heim brunuðu svo fullt af Portúgölum fram hjá okkur með fána á bílunum og flautuðu eins og þeir ættu lífið að leysa. Mathieu og Fabrice sem horfðu á leikinn með okkur varð nú á orði að það væri nú ekki alveg svona merkilegt að vinna fátækasta liðið í keppninni með eins stigs mun... En þetta er rosa skemmtileg stemning og það er mikil spenna fyrir HM í borginni enda allra þjóða kvikindi hér á ferðinni.

Í gærkvöldi skellti ég mér svo ein á Radiohead-tónleika. Mér láðist víst að segja frá dramanu í kringum miðakaupin einhvern tíma í apríl. Guðrún beið hálfan daginn í röð til að fá miða fyrir Mathieu og mig eða Pétur en hver mátti bara kaupa 2 miða. Það kom hins vegar í ljós að eiginlega allir miðarnir voru seldir á netinu eða í gegnum síma svo að hún fékk engan miða. Ég fékk hins vegar einn á netinu og þar sem Mathieu afþakkaði hann ákvað ég bara að skella mér ein og það var sko alveg þess virði enda er ég búin að vera fan frá því í 10. bekk og búin að missa tvisvar af þeim í France! Ég ákvað bara að tjilla á því og skemmta mér, fékk mér bjór og keypti boli handa okkur Pétur og dansaði. Það þarf vart frá því að segja að þetta voru stórkostlegir tónleikar og þeir tóku ný lög sem ég hef aldrei heyrt áður og gamalt í bland. Eru ekki örugglega einhverjir ógeðslega abbó?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com