fimmtudagur, júní 15, 2006

Karlar

Karlmenn hérna megin Atlantsála eru nokkuð frakkari en við eigum að venjast á Íslandi og maður fer ekki varhluta af því þegar maður vinnur í karlafyrirtæki eins og ég. Það er t.d. einn karl hérna (hann er reyndar grískur en ekki kanadískur) sem er vel feitur og subbulegur og kominn nokkuð yfir fimmtugt sem að glápir svo að augun detta næstum út á hvern þann kvennmann sem álpast fram hjá honum og það er erfitt að komast hjá því þar sem hann situr rétt við kvennaklósettið. Ég er ekki sú vinalegasta þegar kemur að svona körlum og sný mig næstum úr hálsliðnum við að yrða ekki á mannfíflið en hann hefur tekið upp á að heilsa mér með mjög svo hálfvitalegu hæ-i í hvert skipti sem ég labba fram hjá og ég þori ekki annað en að svara mjög rafrænt til baka. Ef ég væri hann þá myndi ég ekki eyða orðum á þessa tík sem finnst hún of merkileg til að anda að sér sama loftinu hvað þá meira en eins og Lucy segir þá hafa sumir ekkert stollt... Lucy hryllir sig í hvert skipti sem hún labbar fram hjá honum og það eitt sýnir hversu langt glápið nær því að yfirleitt er hún hin almennilegasta við hvern sem er enda verkfræðingur og þarf að láta sér lynda við þessa kalla!

Lucy hefur samt farið svolítið illa út úr vinalegheitunum og þar sem ég sit hinum megin við þilið við hana þá kemst ég ekki hjá því að heyra í öllum köllunum sem stoppa hjá Lucy til að spjalla og ég veit að það er ekki bara út af því að hún er svo skemmtileg. Það er orðið svo slæmt að hún fær varla vinnufrið fyrir árásunum. Í síðustu viku kom svo einn kallinn sem gæti verið pabbi hennar og er vel í holdum með tætingslegt yfirvaraskegg og byrjaður að fá skalla og gerði sér lítið fyrir og bauð henni út í drykk!!! Ég meina, hvað heldur maðurinn að hann sé??? Ég veit að útlitið er ekki allt en come on, það skiptir einhverju máli. Svo er ekki eins og Lucy færi út með honum vegna peninganna, sem virðist ekki svo sjaldgjæft hér, því að hún er örugglega með mun hærri tekjur en hann. Þegar greyið Lucy sagðist vera að fara út með kærastanum sínum þá sagði kallinn bara: “Nú, þú hafðir ekki hátt um það” (...að þú ættir kærasta sko, þannig að ég er búin að ráðleggja Lucy að tala bara um kærastann sinn í tíma og ótíma hvort sem það er umræðuefninu viðkomandi eða ekki...).

Ég held aftur á móti að ég hafi orð á mér fyrir að vera leiðindatík í vinnunni og nokkrir hafa kommentað á það að ég sé nú mun léttari og skemmtilegri eftir vinnu þegar ég er búin að fá mér aðeins í aðra tána. Einn Ástralinn sagði að í vinnunni liti ég út “like you have a stick up your ass,” en það kemur nú úr hörðustu átt því að aðra eins þurrpumpu hef ég aldrei á æfi minni hitt og fyrir utan það þá er markmiðinu náð, ég verð fyrir lítilli truflun.

Það gekk smá video-klippa um daginn milli kvennanna hér í vinnunni sem var um kynferðislegt áreiti á vinnustað. Vídeóið gekk út á það að það voru tveir gaurar, einn sem átti að vera aðlaðandi og hinn óaðlaðandi (hann hafði nú ekkert í suma gaurana hér samt...) og svo fóru þeir að reyna við gellurnar og viðbrögðin voru vægast sagt misjöfn. Niðurstaða vídeósins var svo að það er lykilatrið að vera aðlaðandi ef menn vilja ekki lenda í málshöfðun vegna kynferðislegs áreitis á vinnustað og ég held að þetta sé bara heilagur sannleikur. Okkur Lucy finnst voða gaman ef sætu ungu strákarnir kíkja á okkur og tala við okkur og hlægjum og látum kjánalega en þeir gömlu og ljótu geta bara gleymt því. Þetta finnst Pétri voða ósanngjarnt af okkur en svona er bara lífið! Þið verðið að afsaka karlafordómana, ég er ekkert að reyna að leyna þeim hér, þetta þarf að vera svolítið krassandi.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Excellent, love it! »

1:33 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com