miðvikudagur, júní 28, 2006

Allez les bleus!

Ég áttaði mig ekki á því að ég héldi með Frakklandi á HM fyrr en þeir voru að vinna Spánverjana í gær, í rauninni hélt ég að ég héldi ekki með neinu ákveðnu liði yfir höfuð en þegar þeir skoruðu tvö síðustu mörkin varð ég rosa glöð. Það eru alltaf nokkrir í kringum mig að fylgjast náið með leikjunum og við köllum hvort á annað þegar einhver skorar. Ein ástæðan fyrir því að ég held svona mikið með Frakklandi er, fyrir utan að hafa eytt tveimur vetrum af lífi mínu þar, að það eru nokkrir Frakkar sem vinna með mér og einn þeirra, hann Thomas, situr ská á móti mér. Thomas er 21 árs og mikill æringi og alltaf eitthvað að prakkarast en á mjög góðlátlegan hátt því að hann er ljúfasta skinn.

Í fyrradag var hann búinn að líma franska fánann við skrifborðið hjá annarri hverri manneskju, meðal annars Lucy hinni ensku, sem var ekki mjög hrifin af þessu uppátæki og sneri fánunum við og teiknaði rauðan kross aftan á þá. Fyrir leikinn í gær gerðu Lucy og Thomas samkomulag um að ef Frakkar töpuðu myndi Lucy fá að líma enska fánann í kringum skrifborðið hans Thomas en ef þeir myndu vinna myndi Thomas veggfóðra básinn hennar Lucy með franska fánanum svo að nú situr Lucy súr á svip umkringd franska fánanum.

Það var voða gaman að sjá Frakkana koma af barnum rjóða í framan af ánægju en þeir stungu af í tvo tíma til að horfa á leikinn, ég hefði svo sem alveg verið til í að stelast með þeim en lét ekki undan freistingunni. Einn og einn Frakki keyrði svo um með fánann og flautaði úti á götu en á mun settlegri hátt en Portúgalarnir, Brassarnir og Ítalirnir. Þó að það séu fullt af Frökkum hérna held ég að þeir haldi ekki eins mikið hópinn og hinir og blandist meira inn í samfélagið enda tala þeir sama tungumál.

Eftir að ég uppgötvaði hvaða liði ég held með hefur komið upp smá vandamál með hvar við eigum að horfa á Frakkland-Brasilía á laugardaginn, því að Pétur hefur alltaf haldið með Brasilíu. Það er mjög skemmtilegur franskur pöbb nálægt okkur þar sem gæti verið gaman að horfa á hann en ég held að ég fari með honum Pétri á brasilískan stað þar sem hann horfði á síðasta leik þeirra (við Ghana) þar sem var víst ærandi stemning. Pétur er samt ekkert viss um að hann vilji horfa á leikinn með mér því að hann hefur áhyggjur af því að ég verði svo leið (því að hann er svo viss um að Brassarnir muni vinna) en ég held að ég sé ekki farin að taka fótboltann alveg svo alvarlega...

P.s. Ég vildi bara benda ykkur á að ég bloggaði líka í gær, já, það er kraftur í henni stelpunni!

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Very cool design! Useful information. Go on! »

6:13 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com