miðvikudagur, ágúst 23, 2006

Mamma, Haraldur og kisurnar...

Mamma og Haraldur komu í vikuheimsókn og við fundum upp á ýmislegu til að gera: Við Pétur teymdum þau um borgina þvera og endilanga, fórum upp í gamla bæinn og upp á fjall, keyrðum til Mont Tremblant og skoðuðum okkur um þar, fórum í golf og í siglingu á St. Lawrence/St. Laurent-fljóti og borðuðum góðan mat svo eitthvað sé nefnt. Sem sagt frábær vika og góðir gestir.

Ég skelli líka inn einni mynd að nýjustu nágrönnunum okkar en það er læðan Skotta og kettlingarnir Snúður og Snælda sem hafa hreiðrað um sig í bakgarðinum. Skotta er mjög vinalegur villiköttur og margir nágrannarnir eru búnir að freistast til að gefa greyjunum að éta og við og nágrannarnir á efstu hæðinni höfum verið að reyna að fá einhvern til að ættleiða littlu skottin án árangurs.

Haraldur, Pétur og mamma á siglingu

Skotta og ungarnir sem taka af henni alla næringu svo að hún er grindhoruð grey kellingin...

Við Mt. Tremblant

Uppi á fjalli

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com