þriðjudagur, ágúst 22, 2006

Það hefur margt á daga okkar drifið síðan ég skrifaði síðast og hér verður því lýst í örstuttu máli og myndum...

Fyrst fórum við í útilegu með Neomi, Tak, Elise, Greg og tíkinni Nanouq, nokkuð ósamstæður hópur en við skemmtum okkur samt mjög vel. Við gengum í um klukkutíma með allt draslið að fallegu vatni og átum og höfðum það gott.

Sumir veiddu (og aðrir reyndu að veiða...). Hér er Pétur að kenna Greg handbrögðin við fluguveiðina en Greg var ekki lengi að ná því og veiddi einn titt.

Aðrir syntu (vinonurnar Nanoq og Noemi)

Svo var tekin bjórpása (Elise, Pétur og Tak)

Og enn aðrir fóru í göngutúr.

Fleiri myndasögur í næsta bloggi...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com