Vinnupirringur
Jæja, ætli það sé ekki kominn tími til að tjá sig aðeins á þessari síðu. Ég ætla að nýta tækifærið og kvarta svolítið, þannig að þið getið alveg sleppt því að lesa þetta ef þið nennið ekki að hlusta á kvart og kvein. Málið er að ég á rétt rúmar 3 vikur eftir í vinnunni og fyrir mér virkar það eins og þrír mánuðir í fangelsi... Ég veit að ég á ekkert að vera að kvarta og þetta á eftir að líða (á endanum kannski...) en ég er barasta alveg að krepera og er farin að láta allt og alla fara í taugarnar á mér sem ég hef reynt að leiða hjá mér hingað til.
Það tíðkast til dæmis hérna að fólk æsi sig alveg svakalega þegar einhver gerir ekki eins og þeim hentar eða klikkar aðeins á að fylgja “The Procedure” og setjist niður og skrifi niðurlægjandi og móðgandi e-mail og passi að senda það á alla sem hugsanlega gætu átt hlut að máli og þar á meðal alla yfirmenn viðkomandi aðila. Ég hef aldrei lent í þessu persónulega enda líklega ekki nógu merkilegur pappír til að geta gert eitthvað af mér að ráði en ég hef verið ein af fjölmörgum sem sum þessara bréfa eru send til og mér finnst þetta vægast sagt skítleg framkoma!
Annað sem mér finnst alveg ótrúlega barnalegt og heimskulegt er að það er einhvers konar stríð í gangi milli deilda hérna, sérstaklega milli verkfræðideildarinnar, innkaupadeildarinnar og skipulagsdeildarinnar og fólk í þessum deildum kennir hinum um allt sem fer úrskeiðis og forðast að hafa samskipti við hvert annað eins og heitann eldinn sem gerir málið auðvitað ekki einfaldara. Ég finn sérstaklega fyrir þessu þar sem hlutverk mitt er meðal annars að coordinate-a (samræma, samskiptast???) milli deilda og mér finnst sérstaklega að allir hinir kenni verkfræðideildinni um allt en það er kannski vegna þess að ég tilheyri þeirri deild.
Þetta minnir mig pínu á þá litlu reynslu sem ég fékk af því að vinna í eldhúsi á veitingastað þegar ég var 17 ára og vann á Hótel Valhöll en þá var endalaust stríð í gangi milli þjónanna og kokkanna, sem mér skilst að sé nokkurs konar náttúrulögmál. Eða eins og þingmenn úr ólíkum flokkum þegar þeir fara í sandkassaleik og láta eins og smákrakkar...
Og hvað er málið með að setja loftkælinguna í botn þegar það er 30 stiga hiti úti og fólk klætt eftir því??? Í horninu mínu í vinnunni er svo kalt að ég þyrfti helst að vera í vetrarjakka inni og fólk hnerrar hérna hvert í kapp við annað vegna kuldans. Það er ekki eins og maður fái ekki nóg af kulda hérna á veturna! Svo er þetta slæmt fyrir umhverfið og eyðir ósonlaginu í þokkabót!
Að jákvæðari hlutum, um daginn fór ég að hitta nokkra nemendur úr Urban Planning á pöbb og gat aðeins spurt þau út í prógrammið og svona. Þau eru eiginlega öll að klára en það kom ein önnur stelpa sem er að fara að byrja í haust og mér leist bara mjög vel á hana og það er gott að vera búinn að hitta einhvern áður en skólinn byrjar. Gömlu nemendurnir sögðu að námið væri mjög skemmtilegt en að fyrsta önnin væri ansi strembin (kannski sérstaklega fyrir einhvern sem er með BA í stjórnmálafræði...) og það þyrfti bara að halda hana út og þá væri þetta fínt.
Eftir vinnu í dag erum við svo að fara í útilegu til Vermont með Martin, Gillian og Juliu á sama stað og ég fór með þeim í fyrra og ég veit að það verður alveg frábært þó að veðurspáin sé ekkert of góð. Góða helgi!

8 Comments:
já mér finnst þetta hljóma frekar hallærislegt allt saman , þetta færi örugglega líka í taugarnar á mér, áttu ekki fullt af veikindadögum, hvernig væri að fá bara eina góða flensu ;)
Jú, Hulda, ég á fullt af veikindadögum og allir eru að minna mig á að ég fái þá ekki útborgaða þegar ég hætti en einhvern veginn fæ ég mig ekki til að hringja mig inn veika. Er samt að drukna í pappírsvinnu þar sem við erum að sækja um lögheimili og námsleyfi og því gæti hugsast að ég tæki mér einn frídag vegna þess.
Nú er akkúrat mánuður þangað til þið komið!!!
Dóra, ég er mjög spennt fyrir því að heyra meira af þessu námi. Geturðu ekki lýst því aðeins nánar? Hvaða fög ertu að fara taka og svona?
Kv. Stína forvitna
Stína, ég veit mest lítið um námið enn sem komið er. Ég skal updata þegar ég veit meira, er bara ekki alveg búin að koma mér inn í þetta... Ætti kannski að drífa í því fyrr en seinna!
Niðurtalningin er hafin - 27 dagar þar til pæjurnar mála Montreal rauða!
Jibbíjibbíjei!
Veiiiiiii, jibbíjei, get ekki beðið, ég hef ekkert smá margt að hlakka til þessa dagana!
What a great site canine oral cancers Ambien overdose during pregnancy
Enjoyed a lot! »
Skrifa ummæli
<< Home