Næstu gestir...
...voru Heiður og Jóel sem keyrðu frá Boston þar sem Jóel stundar nám í MIT. Þau komu um kvöldmatarleytið á föstudaginn og þá var farið beint út að borða á grískan stað eftir mikið fát og ákvarðanafælni “heimamanna” svo var bara farið snemma heim í háttinn enda gestirnir þreyttir eftir ferðalagið.
Á laugardaginn fórum við svo hinn hefðbundna hring í gamla bæinn í algerri bongóblíðu, um 30 stiga hita og sól. Um kvöldið var svo farið út að borða á einn uppáhaldsveitingastaðinn okkar La Sala Rosa, sem er spænsk félagsmiðstöð (Social Club) sem framreiðir tapas, sangria og bestu mojitos í bænum...
Reyndar fórum við Pétur aftur þangað á þriðjudaginn í tilefni af því að verið var að kveðja Juliu vinkonu okkar sem er að flytja aftur til B.C. (British Columbia á vesturströndinni) og svei mér þá þessi staður virðist vera vinsælli á þriðjudögum en laugardögum því að þegar við fórum þangað með Heiði og Jóel var staðurinn nánast tómur fyrir utan nokkra spænska karla og kerlingar sem sátu við sitt hvort borðið og spiluðu mjög alvarleg á svip og neittu hvorki matar né drykkjar.
Eftir matinn var svo haldið á Copacabana, sem er einn uppáhaldsbarinn okkar, svona frekar sjabbí en mjög ódýr og góður. Þar var kveðjuhóf fyrir Juliu í fullum gangi og svaka stuð, okkur fannst samt að við þyrftum að sýna gestunum aðeins meira af næturlífinu og kíktum á tvo aðra staði sem reyndust frekar misheppnaðir og enduðum svo á 99 senta pizzu (sem varð Dóru næstum því að bana þar sem hún þóttist svo svöl að geta borðað segamega sterkt og skellti bæði tabasco-sósu og chillikryddi á sneiðina sína) áður en við héldum heim á leið.
Á sunnudaginn var svo skítaveður, rigningarsuddi og leiðindi svo að við sváfum bara út eftir trall næturinnar. Seinnipartinn ákváðum við svo að drífa okkur upp á fjall sem er samkomustaður Montreal-búa á sunnudögum en þar voru bara orfáar hræður í rigningunni, ca. tveir að spila á tamtam (bongótrommur) og útsýnið ekki upp á marga fiska. Við drifum okkur því á uppáhaldskaffihúsið okkar Santropol og það var ágætt að hafa afsökun fyrir því að sitja inni og borða og drekka te og kaffi á þeim skemmtilega stað. Svo fórum við í bíó um kvöldið...
Pétur fyrir framan einn brúðarbílinn fyrir utan Notre-Dame kirkjuna "þar sem Céline Dion gifti sig..."




0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home