Jólaspenningur
Við komum til Íslands eldsnemma þann 18. des og förum aftur út 7. jan, sem þýðir að við stoppum í þrjár vikur á Klakanum. Ég er gjörsamlega að deyja úr spenningi, það er allt of langt síðan ég var síðast á Íslandi og ég sakna allra alveg rosalega mikið. Ég sé eiginlega hálf eftir því að hafa ekki keypt mér miða fyrr heim því að skólinn er búinn hjá mér 7. des (ég veit, alger lúxus!) en Pétur þarf að fara yfir próf sem er þann 14. þannig að hann kemst ekki fyrr. En ég þarf nú hvort sem er að klára stórt verkefni einhvertíma fyrir jól sem ég mun örugglega ekki ná að klára áður en skólinn er búinn svo að það verður líklega nóg að gera hjá mér. Svo þarf ég auðvitað að kaupa nokkrar jólagjafir, sem verða með allra rýrasta móti í ár...
Ég sá á mbl.is að það er ófærð í Reykjavík og dembir niður snjó og ég fékk næstum tár í augun. Veturinn virðist ætla að vera óvenju seint á ferðinni hér og það hefur ekki enn fryst. Ekki það að maður á örugglega eftir að vera kominn með ógeð á honum í lok apríl. Þetta er líka búið að vera vætusamasta ár í Montréal frá því að mælingar hófust mér til mikillar armæðu, t.d. rigndi allt of mikið þegar gestirnir voru hérna í ágúst af því að vanalega rignir mjög lítið hérna.
Úff, ég vona bara að þessar fjórar vikur líði á ljóshraða, tíminn líður hratt á gervihnattaöld, hraðar sérhvern dag, hraðar sérhvert kvöld... Ég hlakka svo til, ég hlakka alltaf svo til...

8 Comments:
vei vei vei, loksins koma kanarnir... Ekki seinna vænna, Úlfur er tilbúinn til að klípa ykkur og gefa ykkur rennblauta kossa. Hlökkum rosa til, held að dórus ætli að taka sér jólafrí allan tímann meðan þið verðið á klakanum hehe, kominn með pésaskorti!
Öss! Þessi kuldi sem er búinn að vera síðustu daga í Reykjavík hefur minnt mikið á það sem maður upplifði í Kanada. Svo fáið þið rigningu og engan snjó, svona týpískt íslenskt veður.
Það er samt merkilegt að þó það hafi snjóað svona mikið undanfarið þá hefur allur snjórinn fokið úr fjöllunum. Vonum samt að það komi meiri snjór fyrir jól, þá er aldrei að vita nema maður geti skellt sér í eins og eina brettaferð í skálafell.
Litli kúturinn okkar er því miður ekki farinn að klípa mikið og kann ekki að kyssa. En ég er handviss um að hann eigi eftir að prumpa hressilega fyrir Pésa þegar þið kíkið í heimsókn.
Þú færð svo klárlega eitt bravó! fyrir afbragðs remix af "gleðibankanum" og "ég hlakka svo til" ;)
Sjáumst um jólin
kv,
Elli, Anna Lilja og ónefndur Ellason
Vei, gaman að einhver skuli hlakka svona til að hitta okkur. Við hlökkum rosalega til að fá klíp, blauta kossa og prump!
Já, ég skil ekkert í því af hverju þið fáið allan snjóinn og kuldann á Íslandi, algert svindl! Annars er Montreal að verða með sjálfri sér og það er orðið nokkuð kalt og sól á hverjum degi, bíðum bara eftir snjónum. Ég get ekki beðið eftir að fara á bretti því að ég var að fá nýja snjóbrettaskó og bretti í snemmbúna jólagjöf!
Kíktu endilega í heimsókn til okkar í Ármúla 6 ef þú hefur tíma fyrir jól. Við erum spræk sem fyrr.
Ég reyni að kíkja í heimsókn ef ég hef tíma Hrafnhildur. Ég lofa samt engu, þessir dagar á Klakanum líða svo hratt, það væri samt gaman að hittast. Bið að heilsa öllum.
Hvernig var svo í jólafríinu, ég var að vonast til að fá eitthvað djammrugl-símtal frá ykkur stelpunum í stuði en það hringdi aldrei neinn...snökt...!
Skellið nú inn smá ferðasögu og myndum!
Knús, Gunnþóra
update...vil fá update!!
hallló eruð þið nokkuð dauð þarna í montreal?????
Skrifa ummæli
<< Home