Loksins...
...bara örstutt til að láta vita að ég er að fara að blogga aftur. Þannig að ef einhver hefur áhuga á að vita hvað við gerum hérna í Montréal í 20 stiga frosti þegar við náum að drulla okkur út úr hýðinu, þá verið viðbúin. Ég lofa samt engum daglegum langlokum því að það er voða takmarkað sem maður gerir í svona "&$%&#%$ kulda!!! Fyrir utan auðvitað að faðma að sér frostið á snjóbretti um hverja helgi (In Montréal, you have to embrace the winter, you know...).
Svo get ég náttúrulega sagt ykkur frá alveg yndislegum lögfræðikúrsi sem ég neyðist til að taka og er gjörsamlega að gera út af við mig. Ég get allavega þakkað fyrir að hafa asnast í stjórnmálafræðina í staðin fyrir að hafa verið praktísk og skellt mér í lögfræði á sínum tíma. Lögfræðingar þarna úti (aka Stína), ekki móðgast, ég ber mjög mikla virðingu fyrir lögfræðingum, enn meiri en ég gerði fyrir þennan blessaða kúrs.
Sem betur fer hef ég annað áhugaverðara og ópraktískara að skemmta mér yfir eins og hnattvæðingarkúrs, civic design og GIS (tölvudót). Svo er ég að sjálfsögðu í stúdíókúrs með tilheyrandi hópavinnu og gleði. Ég held að ég sé að upplifa smá menningarsjokk í þeim kúrsi því að mér finnst að þessir blessuðu Kanadamenn geti eytt heilli eilífð í að skipuleggja minnstu smáatriði og blaðra um eitthvað sem mér finnst skipta voða litlu máli. En kannski er það bara ég, mér finnst betra að vinna bara ein að mínum hluta í mínu horni.
Læt þetta duga í bili,
D

7 Comments:
Vei vei - loksins ný færsla :)
Vona að þið hafið það gott þarna í frostinu, það er líka ótrúlega kalt hér í Stokkhólmi, búið að vera fyrir neðan frostmark í þrjár vikur!
Er núna mjög forvitin að vita hvaða kúrs það var sem vakti þessa svakalegu gleði hjá þér annars hehe ;)
já vei vei segi ég líka...
Mikið er ég glöð að sjá að það er einhver að lesa stelpur mínar.
Stína, þessi kúrs heitir Land Use Planning og er um zoning by-laws og önnur skemmtilegheit. Ekki reyna að biðja mig um að segja þér hvað þetta heitir á íslensku þó að það gæti verið hentugt að vita það!
Iss, niður fyrir frostmark hvað? Maður fer nú ekki að kvarta fyrr en það fer verulega niður fyrir -10 ;-)
Ég skal fyrst manna viðurkenna að þessi kúrs hljómar ekki mjög spennandi :-/ Og þegar lögfræði er leiðinleg þá er hún ógeðslega leiðinleg...
Annars á ég nú nokkrar ljúfar minningar úr -30°c frá Abitibi-Temiscamingue þarna úti í rassgati hjá þér. Ótrúlegt veðurfar en ég fílaði það svoldið vel :)
Haha, faðma frostið að sér...voðalega Kanada(ný)búar ljóðrænir...!
En talandi um hópavinnu, you've ain't seen nothing yet! Reyndu að komast lífs úr hópavinnu með Dönum, þeir þurfa að ræða hvern staf sem settur er á blað og hverja setningu sem lesin er. Alger killer!
Úpss, gleymdi að kynna mig...skrifaði s.s. rasíska pistilinn hér að ofan..
Er annars ofsa glöð með að þú/þið sért farin að blogga aftur, húrra fyrir því!!!!
jei ég er líka glöð, var alveg búin að gefa upp alla von:)
Skrifa ummæli
<< Home