mánudagur, febrúar 12, 2007

Algengar athugasemdir þessa dagana...

... er ég enn með nef?
...ertu bara með EINA húfu?
...hvað ætlarðu í mörgum gammosíum í dag?
...(í gemsann) ég verð að hætta að tala við þig, höndin mín er að frjósa af!
Global warming hvað?!
Ok, sumt er kannski smá ýkt og í rauninni er bara búið að vera um 15-20 stiga frost undanfarið (maður fer nú ekki að kvarta fyrr en það fer mikið niður fyrir -20) en það er bara búið að vera allt of lengi. Mig langar í nokkra milda daga, bara rétt um frostmark, ég bið ekki um meira. En nú ætla ég alveg að hætta að kvarta yfir kulda og reyna að segja frá einhverju skemmtilegu.

Í næstu viku er vetrarfrí í skólanum og við Pétur erum að fara í fimm daga ferð með snjóbrettaklúbbnum til norðaustur Québec. Við munum fara á fjögur mismunandi svæði sem ég hef aldrei komið á og við hlökkum mikið til. Ég á einmitt afmæli á fimmtudeginum (ég er barasta alveg búin að steingleyma hvað ég verð gömul) og þá verðum við í Québec-borg þannig að ég er viss um að það verður skemmtilegur afmælisdagur. Svo á að halda svaka partý á laugardeginum þegar við verðum komin aftur heim, gaman, gaman.

En nú verð ég að halda áfram að lesa lög og sækja um sumarvinnu, gaman, gaman.

D

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

sumarvinnu á íslandi þá?

4:18 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég ætla að sækja um bæði á Íslandi og hérna úti. Ég þarf að fá þriggja mánaða starfsreynslu tengda skipulagsfræði sem hluta af náminu. Sjáumst kannski í sumar!

10:19 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Jæja þú átt nú ekkert eftir að sjá mig því ég fer ekki heim í sumar! En það er örugglega auðveldara að fá djúsí sumarvinnu á Íslandi en í Montréal.

5:24 f.h.  
Blogger Unknown said...

Sæl og blessuð Dóra. Innilega til hamingju með afmælið, vonum að þið hafið skemmt ykkur vel á bretti. Það er valla hægt að hugsa sér betri leið til að njóta afmælis síns en í brekkunum á bretti.

Bestu afmæliskveðjur frá Ella, Önnu Lilju og Bjarka Heiðari

1:05 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir afmæliskveðjuna, Elli, Anna Lilja og Bjarki Heiðar. Ég fékk líka sms-ið. Það var alveg geggjað á bretti, sól og blíða og gott færi á afmælisdaginn. Hinn fullkomni afmælisdagur!

Heyrumst!

10:31 e.h.  
Blogger Halldór said...

Gaman að sjá að þú ert byrjuð að blogga aftur. Maður var næstum hættur að kíkja á síðuna :)
Til hamingju með afmælið, frá Halldóri, Öggu og Úlfi

Ps. við munum hvað þú ert gömul ;)

12:10 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com