Sælt veri fólkið,
Einhver ykkar hefur ef til vill tekið eftir athugasemdum Guðbjargar Hildar Kolbeins, lektors við Hákóla Íslands , um smáralindarbæklinginn sem gekk undir fyrirrsögninni: Fermingarklám Smáralindar.
Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki séð þennan "klámfengna" bækling og því er þetta blogg ekki byggt á þessum bæklingi heldur umræðunni sem varð eftirá og hefur verið fyrirferðamikil í samfélaginu að undanförnu. Mín skoðun er: "Beauty is in the eye of the beholder," en það á oft einnig við um klám.
Þetta er háalvarlegt mál, en ég er satt að segja orðinn svolítið þreyttur á þeirri umræðu sem hefur skapast þar sem ég og helmingur jarðarbúa eru settir í hóp með nauðgurum og "villimönnum" sem ekki ráða við dýrslegar og ógeðfelldar hvatir sínar (sem fyrir þá sem ekki hafa lesið greinina: Fermingarklám Smáralindar, tengjast beint skaufum karlkyns lesanda og hverskyns glufum eins og opnum kvenmunnum t.d.). Sorrý hér brýst út gremja sem hefur lengi blundað í mér og ég átta mig fyllilega á því að þetta er bara mín túlkun á þessari umræðu. Mér finnst bara að það komi ekki alltaf skýrt í gegn að við erum ekki allir ómórölsk illmenni jafnvel þó við fæddumst með "skaufa."
Ég gæti skrifað heila bók um kynlíf og klám (sem alls ekki er sami hluturinn fyrir þá sem ekki vissu) og nútíma samfélag okkar, en þar sem þetta viðfangsefni virðist vera viðkvæmt í okkar samfélagi eins og það hefur ætíð verið þá held ég að ég sleppi því (Og svo hef ég ekki tíma).
Ég ætla þó að leyfa mér að birta hér spurningu og svarmöguleika sem birtust á bloggi Katrínar Önnu Guðmundsdóttur, talskonu feministafélagsins (sjá http://hugsadu.blog.is/blog/hugsadu/?nc=1):
Hvað er kynferðislegt frjálslyndi í þínum huga?
- Að kynlíf sé falleg tjáning á milli tveggja eða fleiri einstaklinga sem ganga jafnir til leiks og hafa yfirráðarétt yfir líkama sínum sjálfir
- Að verja rétt einstaklinga til að horfa á konur kallaðar druslur, hórur og tíkur á meðan brundað er framan í þær í kynlífsathöfnum
Ef þetta eru hinir einu svarmöguleikar við þessari opnu spurningu um kynferðislegt frjálslyndi þá mætti kannski verulega fara að hugsa um að auka umfjöllun um kynlíf, ekki bara meðal fermingarbarna og unglinga heldur meðal fullorðinna einnig.
Það er ætíð varhugavert að setja fram mikilvægar spurningar sem varðar okkur öll og bjóða svo bara uppá tvo fyrirfram ákveðna "þrönga" og pólitískt hlaðna svarmöguleika. Yfirleitt eiga spurningar sem þessar sem snerta á mikilvægum þáttum sem þessum heima í ritgerðum og lengri greinum. Ég veit að blogg virkar ekki þannig en spurningar eins og hvort er betra kók eða pepsí eru etv. hentugri í slíkum tilfellum en þetta er náttúrlega bara mín skoðun.
Til að enda þetta á jákvæðu nótunum vil ég sýna ykkur hvernig móðir náttúra hefur verið að klámvæðast upp á eigin spýtur í takt við nútíma samfélag:
Það ætti ef til vill að banna móður náttúru þetta klám. Spurningin er þó hvor er klámhundurinn og soraheilinn, móðir náttúra eða áhorfandinn sem sér klám á hverju horni?
Kveðja,
Pétur
PS. Þó mér líkaði ekki lýsingar Guðbjargar Hildar í bloggi sínu þá á hún fullan rétt á sínum skoðunum.

2 Comments:
pétur dóni, það þarf sko að banna þetta blogg fyrir yngri en 18;)
dónagulrætur!
annars eru þessar athugasemdir um þennan smáralindarbækling með öllu fáránlegar og lýsa best þeim sem settu þær fram.
ég styð janfrétti heils hugar, en mér finnst femínistar oft á tíðum skemma málstaðinn með öfgakenndum skoðunum og aðgerðum sem verða þeim síst til framdráttar.
'Eg er hjartanlega samm'ala ther Heidur. Thessar gulraetur ganga ansi langt yfir strikid.
Eg styd einnig jafnretti. Feministar eru og hafa verid mikilvaegir i jafnrettisbarattunni. Hinsvegar finnst mer sumir einstaklingar ganga allt of langt. Thegar jafnrettisbarattan er ordin einvordungu ad stridi milli kynjanna tha hefur hun gleymt takmarki sinu. Tho se eg tilganginn i ofgahyggjunni, ofgar hafa sogulega breytt miklu. Eg efast um ad folk hafi skilid Suffragetturnar 'a sinum tima, en i dag myndu margir (eg einnig) segja thaer hafa verid mikilvaegar i jafnrettisbarattunni.
I Smaralindartilfellinu finnst mer ofgarnar hinsvegar odruvisi thar sem thaer snua ad sidferdiskennd folks og skilgreiningu a klami.
Thad er nefnilega thannig ad ofgarnar geta ordid svo miklar i adra attina ad thaer fara hringinn. Thannig fer folk oafvitandi ad stydja thad sem thad hefur verid ad berjast gegn. I thessu tilfelli eru thaer ordnar svo miklar ad thaer eiga meira skylt vid puritana stefnu Talibana, Votta Jehova, Ofga kristinna og annara truar hopa en jafnrettis stefnu. Ekki er bara verid ad daema stulkuna sem einhverskonar lauslaetishoru vegna klaedaburdar og likamstellingu (sem td. er algengt vidhorf ofga truarhopa a vestraenum konum) heldur er hun lika svipt barndomi sinum thegar hun er gerd ad kynveru.
Ekki ma heldur gleyma ad karlmenn eru gerdir ad sidlausum villimonnum sem hafa adeins eitt a heilanum i slikri gagnryni (Her meina eg smaralindarbaeklings gagnrynina).
En thegar madur vill tala um thetta vid einhvern, tha tekur folk andkof, enginn thorir ad vera a moti, hvorki menn ne konur thar sem folk er hraett fyrir ad vera daemt sem djofullinn sjalfur og fyrir ad adhyllast skodanir sem sumir flokka sem undirrot kugunar og 'ojafnrettis i okkar samfelagi.
Einn gramur,
Petur
Skrifa ummæli
<< Home