föstudagur, mars 23, 2007

30. apríl

Jæja, þá er ég búin að kaupa miðann heim frá Boston sunnudaginn 29. apríl og lendi eldsnemma þann 30. Ég geri ráð fyrir að allir séu alveg gífurlega spenntir yfir þessum fréttum og geti ekki beðið eftir að hitta mig :-) Ég fer í bekkjarferð til Boston 21. apríl en bekkurinn fer til baka til Montreal þann 25. Ég ætla að vera áfram í nokkra daga í Boston með Heiði, sem verður þar ásamt HR bekknum sínum, og Jóel vini hennar í nokkra daga. Ég á s.s. bara einn mánuð eftir hér í Montréal ásamt Pésa mínum og einn mánuð til að klára öll þau verkefni sem ég þarf að ljúka í skólanum, úff. Ég hlakka samt mikið til að koma heim og hitta alla, sérstaklega börn. Ég var að skoða barnablogg vinkvenna minna og fattaði allt í einu að ég sé ALDREI börn, eða eiginlega aldrei, nema kannski á snjóbretti og þá glápi ég á þau þannig að þau halda að ég sé eitthvað biluð.

Á meðan ég man: ef þið þurfið á húsnæðispössun, gæludýrapössun, barnapössun eða plöntupössun (tek fram að það síðastnefnda er ekki mín sterkasta hlið...) að halda í sumar, þá er ég til þjónustu reiðubúin!

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þið Pési þurfið bara að búa til barn sjálf, þá eignastu eitt sem þú getur glápt á og knúsað eins og þig lystir...!
Kunnið þið ekki alveg uppskriftina...hehehe...

5:33 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

P.s. Hlakka annars rosalega mikið til að hitta þig í júlí og ég skal alveg leyfa þér að knúsa Leo. Hlakka samt mest til stelpuafmælisdekurdagsins!

3:29 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hlakka til sömuleiðis Gunnþóra. Nei, við virðumst ekki alveg hafa þessa barnauppskrift á hreinu, hvað þarf maður eiginlega að gera til að fá eitt svoleiðis? ;-)

9:38 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com